112 meintir barnaníðingar handteknir

112 hafa verið handteknir grunaðir um barnaníð í Evrópu stækka

112 hafa verið handteknir grunaðir um barnaníð í Evrópu Reuters

Alls hafa 112 einstaklingar sem eru grunaðir eru um barnaníð verið handteknir í 22 Evrópulöndum í sameiginlegri aðgerð Europol og lögreglu í ríkjunum 22. Að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var enginn handtekinn á Íslandi en Ísland var ekki aðili rannsókninni en öll hin Norðurlöndin tóku þátt í aðgerðinni.

Á vef Berlingske Tidende eru 19 Danir meðal hinna handteknu, karlmenn á aldrinum 24-55 ára.

Á blaðamannafundi Europol í Haag í dag kom fram að mennirnir sem voru handteknir eru grunaðir um að hafa dreift á netinu myndböndum þar sem börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi og nauðgað. 

Framkvæmdastjóri Europol, Rob Wainwright, segir að nú þegar hafi lögregla í ríkjunum 22 borið kennsl á 269 einstaklinga sem eru grunaðir um barnaníð. Af þeim hafa 112 verið handteknir. 

Ríkislögreglustjóri Danmerkur segir í samtali við Berlingske að aðgerðin sem nefnist Íkarus hafi verið unnin í samstarfi við Europol.

Alls tók lögregla í 26 löndum þátt í aðgerðunum en þær miðuðu að því að hafa uppi á þeim sem deildu óhugnanlegasta efninu. Meðal annars eru myndbönd af smábörnum beitt ofbeldi af barnaníðingum. Mikið af efninu fannst við húsleitir á heimilum þeirra sem hafa verið handteknir.

Rannsóknin stendur enn yfir og á Europol að enn fleiri verði handteknir í tengslum við rannsóknina. Sérstök áhersla er lögð á að finna framleiðendur myndefnisins sem og börnin sem urðu fyrir ofbeldinu. Meðal þeirra sem voru handteknir er karlmaður sem hafði hlaðið niður barnaníði en hann er grunaður um að hafa ætlað sér að beita barn sjálfur ofbeldi. Var hann handtekinn áður en hann hitti barnið augliti til auglitis.

Löndin sem tóku þátt eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Malta, Holland, Pólland, Slóvakía, Spánn, Svíþjóð, Króatía, Noregur og Sviss.

Jens Henrik Højbjerg, ríkislögreglustjóri Danmerkur segist vera ótrúlega stoltur yfir framgangi og kunnáttu danskra lögreglumanna í stórum rannsóknum sem þessum.

Í mars sl. handtók lögregla í nokkrum Evrópuríkjum á annað hundrað einstaklinga, þar á meðal íslenskur karlmaður um þrítugt, í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu í nokkrum löndum á barnaklámshring á Netinu.

Alls eru um 70 þúsund manns taldir tengjast barnaklámshringnum en 184 voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu í mars, meðal annars á Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu og Brasilíu. Teygði málið einnig anga sína hingað til lands. 

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bárust gögn um málið á síðasta ári en í þeim var íslensk IP-tala (einkennistala tölvu) rakin til manns á höfuðborgarsvæðinu.

Í framhaldinu var Íslendingurinn handtekinn og yfirheyrður og hjá honum gerð húsleit. Hald var lagt á tölvubúnað en í honum fundust gögn um þátttöku mannsins í spjalli á Netinu þar sem umræðuefnið var barnaníð.

Íslendingurinn, sem notaðist ávallt við sama gælunafn þegar hann tók þátt í spjalli af þessu tagi, viðurkenndi aðild sína að málinu. Maðurinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu hérlendis og fékk átta mánaða fangelsisdóm árið 2006 fyrir vörslu á myndefni sem sýndi börn misnotuð kynferðislega, neitaði því hinsvegar að hafa undir höndum efni sem sýndi kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

Engu að síður fundust í tölvugögnum hans fimm hreyfiskeið sem öll sýndu kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
 
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....