Óhæfuverk ríkisstjórnarinnar

Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður.
Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður. mbl.is/Kristinn

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði við upphaf þingfundar Alþingis í morgun að ríkisstjórnin ætlaði að framkvæma óhæfuverk á lokadögum þingsins með því að leggja fram til annarrar umræðu frumvarp sem kveður á um að Íslendingar greiði allt að 37,2 milljarða kr. í aukið stofnfjárframlag til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

„Þessu á að lauma í gegn í skjóli þess asa sem nú er í þinginu. Aukning stofnfjárframlagsins er meðal annars gerð til að standa straum af fjárhagsaðstoð við fallvölt aðildarríki stofnunarinnar. Fyrsta framlagið, 9,3 milljarðar króna, verður greitt af gjaldeyrisvarasjóði Seðlabanka Íslands, í gjaldeyri eftir að frumvarpið hefur verið samþykkt. Afgangurinn, 27,9 milljarðar króna, verður geymdur í Seðlabanka Íslands, tiltækur fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um leið og sjóðurinn þarfnast peninganna,“ sagði Tryggvi Þór.

Vegleg jólagjöf færð bákninu í Washington

Hann sagði stjórnarliða sennilega reyna að telja mönnum trú um að þetta sé einungis bókhaldslegt atriði. „En ég bið þá sem er annt um fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga að biðja þessa sömu stjórnarliða að útskýra nákvæmlega í hverju þessar bókhaldsbrellur eru fólgnar.

Það er vegleg jólagjöf sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur færir bákninu í Washington þessi jólin, bákninu sem reyndi að þvinga okkur til að borga Icesave,“ sagði Tryggvi Þór.

Önnur umræða um frumvarpið hófst skömmu fyrir hádegi. Skv. því er leitað heimildar fyrir ríkisstjórnina til að samþykkja hækkun á kvóta landsins hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Mun kvóti Íslands hækka úr 117,6 milljónum SDR í 321,8 milljónir SDR, sem jafngildir um 58,3 milljörðum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert