Hærri fargjöld og erfiður róður
Fargjöld í innanlandsflugi hækka og rekstur Flugfélags Íslands verður erfiður þegar hækkanir á lendingar- og farþegagjöldum á Reykjavíkurflugvelli verða að veruleika á næsta ári. Þetta segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.
Hækkanirnar nema 250 milljónum, þær eru samkvæmt samgönguáætlun til næstu fjögurra ára og eiga að koma til framkvæmda í tveimur jafnstórum áföngum 2012 og 2013. Þetta verður nýtt í framkvæmdir og viðhald.
Í fréttaskýringu um auknar álögur á innanlandsflugið í Morgunblaðinu í dag segir Árni gjaldahækkunina ekki hafa verið kynnta forsvarsmönnum flugfélagsins. Hann segist hafa átt von á einhverjum hækkunum um áramótin, en að þær yrðu nokkru minni. „Við lásum í samgönguáætluninni að okkur ber að borga 250 milljónum meira til hins opinbera. Þetta mun augljóslega hafa áhrif á fargjöldin til hækkunar, það er alveg ljóst. Það er ekkert óeðlilegt við að gjöld hækki í samræmi við verðlag og annað slíkt. En að hækkunin yrði í þessum stærðarflokki; því áttum við engan veginn von á. Þetta verða 125 milljónir á næsta ári og hefur veruleg áhrif á reksturinn.“
Að sögn Árna hafa ýmis gjöld verið lögð á félagið undanfarin ár. Erfitt sé að sjá hversu lengi það geti haldið áfram. „Það er verið að tvískatta okkur vegna kolefnisblásturs; bæði vegna útblásturs á eldsneyti sem við greiðum til ríksins og frá janúar 2012 þurfum við að borga samkvæmt evrópsku kerfi, ETS. Síðan hafa bæði lendingar- og farþegagjöld hækkað á okkur og skattar á eldsneyti og eldsneytisverðið sjálft hefur hækkað.“
Bloggað um fréttina
-
Gísli Birgir Ómarsson Næsta skref hjá þessum kjánum á þingi.... -
Haraldur Haraldsson Hærri fargjöld og erfiður róður///það vantar þarna samkeppni ,ekki spurning!!!
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 1. apríl 2012, Innlent Flugsamgöngur ekki fyrir alla
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Hærri lendingargjöld skili 250 milljónum
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Innlent Útblásturinn tvískattaður verði innlent gjald ekki fellt niður
- Fimmtudagur, 19. janúar 2012, Innlent Aðeins efnað fólk getur notað innanlandsflug
- Þriðjudagur, 21. desember 2010, Innlent Óþarfa millilending á Egilsstöðum
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































