Harðar deilur á þingfundi

Hvöss orðaskipti urðu við umræður um störf þingsins á Alþingi í morgun. stækka

Hvöss orðaskipti urðu við umræður um störf þingsins á Alþingi í morgun. mbl.is/Golli

Þingmenn deildu hart við upphaf þingfundar í morgun um tillögu Bjarna Benediktssonar um að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði dregin til baka. Þingmenn Sjálfstæðisflokks hvöttu þingmenn til að taka höndum saman um tillöguna en nokkrir þingmenn stjórnarflokkanna gagnrýndu tillöguna. 

Magnús Orri Schram Samfylkingunni sagði að Alþingi ætti ekki að grípa inn í feril ákærumálsins. Sagðist hann bera fullt traust til þess að Geir H. Haarde njóti sanngjarnar og réttlátrar málsmeðferðar fyrir Landsdómi.

Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, minnti á að fyrst hafi verið lagt upp með að fjórir ráðherrar yrðu ákærðir en síðan samþykkti meirihluti þingmanna að eingöngu Geir yrði ákærður. „Ég held að Alþingi eigi að endurskoða þetta mál, sérstaklega þegar búið er að vísa veigamiklum þáttum frá,“ sagði hann.

Ólína Þorvarðardóttir Samfylkingunni sagði Landsdómsmálið erfiðasta málið sem Alþingi hefði fengið til úrlausnar. „Alþingi Íslendinga getur ekki verið þekkt fyrir það að ganga inn í réttarhald sem er hafið fyrir dómstól. Það væri að bíta höfuðið af skömminni,“ sagði hún. Sagði Ólína fráleitt ef forseti léti sér til hugar koma að setja málið á dagskrá.

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagði að þetta mál kæmi úr „myrkustu iðrum Sjálfstæðisflokksins“. Sagði hann að ákæran væri í ágætisfarvegi. „Það er Sjálfstæðisflokkurinn og enginn annar sem er að biðja um það að málið verði dregið til baka,“ sagði hann.

Lúðvík Geirsson Samfylkingunni gagnrýndi tillöguna og vinnubrögð sem viðhöfð væru á þinginu. „Það var hér úr ræðustól þingsins fyrir nokkru síðan lögð fram sú hugmynd að það væri ástæða til að setja upp rólur í hliðarsölum, þar sem einstaka þingmenn, sem geta ekki unað þeim almennu starfsháttum, sem eiga að vera hér á þinginu, gætu dundað sér í þeim rólum,“ sagði Lúðvík og sagði hugsanlega væri nú ástæða til að taka þá tillögu aftur til skoðunar.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði skrítið að heyra þá gagnrýni stjórnarþingmanna að Alþingi eigi ekki að grípa inn í dómsmál. Þetta væru flokkarnir sem gætu hunsað niðurstöður t.d. Hæstaréttar um ógildingu kosninganna til stjórnlagaráðs.

„Ég hef aldrei á ævi minni kynnst öðrum eins munnsöfnuði og vinnubrögðum og hjá háttvirtum þingmönnum, Þór Saari og Birni Val Gíslasyni, á síðustu dögum þegar verið er að semja um mál,“ sagði hann og beindi spjótum sínum að þingflokki Vinstri grænna, sem hann sagði að hefði ekki staðið við samninga um afgreiðslu þingmáls. Þá sagði Gunnar Bragi að þingmenn Hreyfingarinnar ættu að skammast sín. Þeir væru alltaf að vanda um fyrir öðrum þingmönnum. „Ég held að þingmenn Hreyfingarinnar ættu bara að skammast sín, hlusta á eigin ræður og hvernig þessir þingmenn tala niður Alþingi og tala niður þjóðina. Þið eruð okkur til skammar,“ sagði hann.  

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði að það væri Alþingi sem ræki Landsdómsmálið og af því leiði að Alþingi hlyti að hafa á því skoðun og geta skipt um skoðun á því ef því sýndist svo.

Sigmundur Davíð sagði það eðlilega kröfu að fá að taka þetta mál fyrir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting á Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á rólegum og góðum stað á Akureyri. Sér inngangur...
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
Fleetwood Cheyenne árg. 2007, 10 fet.
Markísa, fortjald, grjótvörn, upph., álfelgur, heitt og kalt vatn, íssk., hljómt...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...