Vax á best skreytta jólatrénu

Tinna Ottesen ásamt Dorrit Moussaief við best skreytta jólatréð.
Tinna Ottesen ásamt Dorrit Moussaief við best skreytta jólatréð. mbl.is/Árni Sæberg

Jólatré sem Tinna Ottesen skreytti var valið best skreyta jólatréð í samkeppni í samkeppni sem Skógræktarfélag Íslands stóð fyrir. Dorrit Moussaief forsetafrú valdi best skreytta tréð.

Skógræktarfélagið fékk fimm unga myndlistarmenn og hönnuði til að skreyta íslensk jólatré. Hafa þau verið til sýnis á jólatrjáamarkaði skógræktarfélaga við Umferðarmiðstöðina undanfarna daga.

Var það gert til að gefa gestum tækifæri til að kynnast nýstárlegum og frumlegum leiðum til að skreyta jólatré.

Tinna notaði meðal annars heitt vax til að skreyta fjallaþin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert