Ekki grjót sem hrundi

Mynd sem sýnir grjót i Oddskarðssgöngum 14. desember 2011. stækka

Mynd sem sýnir grjót i Oddskarðssgöngum 14. desember 2011. Ljósmynd/Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir

Vegagerðin segir að ljósmynd af grjóti í Oddskarðsgöngum sé af grjóti sem hafi verið losað. Ekki sé um að ræða grjót sem hrundi, líkt og fram hafi komið.

Myndin, sem var birt á Facebook og fjallað var um á mbl.is, sýni því ekki grjót sem hafi hrunið.

Segir á vef Vegagerðarinnar að svæðið hafi verið merkt vinnusvæði og verktakinn, sem hafi verið að hreinsa þar, hafi verið á leið út með annað efni sem hafði losnað úr gangaveggnum. Verktakinn hafi varað vegfarandann á myndinni við steininum, en verktakinn hafði skilið hann eftir í vegkantinum. Segir að steininn hafi verið tekinn niður á öðrum stað úr gangavegg og hafði því alls ekki hrunið út göngunum.

„Morguninn 14. desember hrundi smátt grjót úr gangavegg í Oddskarðgöngum inn á veg á um 5 m löngu svæði þar sem er kargi í gangavegg.  Snjómokstursverktaki Vegagerðarinnar sem kom að þessu um kl. 6 um morguninn hreinsaði grjótið af akbrautinni, en nokkuð var af lausu grjóti sem var utan í gangaveggnum var það hreinsað upp á milli kl. 8 og 9.  Starfsmenn Vegagerðarinnar skoðuðu aðstæður í framhaldinu um morguninn. Bergið (karginn) þarna var laust í sér og var að springa frá veggnum í stærri stykkjum.  Ákveðið var í framhaldinu að skrota (losa um allar sprungur) og hreinsa svæðið sem var gert aðfaranótt 15. desember undir verkstjórn Vegagerðarinnar.  Þegar unnið var við að flytja efnið sem losað var frá veggnum á umræddu svæði var steinn tekinn niður á öðrum stað sem hafði verið skorðaður við styrktargrind í gangavegg í útskotinu að norðanverðu,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Myndin sem um ræðir er af þessum steini, því að samkvæmt upplýsingum frá verktakanum sem var á gröfunni og vann fyrir Vegagerðina, skildi hann steininn eftir í vegkantinum á meðan hann var að fara út úr göngunum með annað efni.    Verktakinn aðvaraði vegfarandann sem er á umræddri mynd og  var þarna á ferðinni um að steinninn væri inn á akbrautinni og hann tæki hann á eftir.  Göngin voru merkt sem vinnusvæði og umferðartafir vegna vinnu í jarðgöngum auglýstar á heimasíðu Vegagerðarinnar,“ segir ennfremur.

Tekið er fram að fylgst sé með ástandi gangana eftir megni. Vegagerðin láti m.a. snjómokstursverktakann, sem sé þarna mikið á ferðinni og þekki vel til, vakta hvort eitthvert laust grjót sé á eða við akbraut.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Æfingabekkur
Æfingabekkur til sölu. Upplýsingar í síma : 8935005...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Söluvagn / Pulsuvagn til sölu.
Hef til sölu nýlegan söluvagn tilbúinn í rekstur. Fullbúinn til sölu á pulsum og...
Enskur stofusófi
Flottur sófi til sölu vegna flutnings. Verðhugmynd 30.000 kr. Upplýsingar í sí...
 
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...