Heilbrigðisþjónusta hækkar um 5,3%
Gjald fyrir sjúkraflutninga þeirra sem eru sjúkratryggðir hækkar um 7,2%, úr 5.130 kr. í 5.500 kr. mbl.is / Hjörtur
Gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 5,3% um næstu áramót í samræmi við áætlun fjárlaga um hækkun sértekna stofnana og þar með vegna verðlags- og gengisbreytinga. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt.
Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að sértekjur stofnana hækki að jafnaði um 5,3%. Er þá gert ráð fyrir leiðréttingu vegna vanmats á verðlagsbreytingum í forsendum fjárlaga þessa árs og spá um 3,7% hækkun vísitölu neysluverðs árið 2012. Hinn 1. janúar næstkomandi taka gildi breytingar á gjaldskrám fyrir heilbrigðisþjónustu til samræmis við þetta. Helstu ákvarðanir um gjaldskrár ársins 2012 eru þessar:
Sjúkra- iðju- og talþjálfun: Kostnaður sjúklinga fyrir þjálfun sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um þrjú prósentustig fyrir fyrstu 30 skiptin hjá þjálfara. Kostnaður vegna meðferðar sem samþykki hefur verið veitt fyrir umfram 30 skipti hækkar ekki frá því sem nú er.
Sjúkraflutningar: Gjald fyrir sjúkraflutninga þeirra sem eru sjúkratryggðir hækkar um 7,2%, úr 5.130 kr. í 5.500 kr. Þurfi sjúklingur sem liggur á sjúkrahúsi eða heilbrigðisstofnun á sjúkraflutningi að halda greiðir viðkomandi stofnun fyrir flutninginn.
Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar: Hlutur sjúklinga vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands hækkar um 5,32%.
Lyfjakostnaður: Greiðsluþátttaka sjúklinga í kostnaði vegna lyfja sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða hækkar um 5,32%.
Kostnaður þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir: Almennt munu greiðslur þeirra sem ekki eru sjúkratryggðir hækka um 5,32% fyrir heilbrigðisþjónustu frá áramótum. Þetta á þó ekki við um kostnað þeirra vegna sjúkraflutninga sem færist nær raunkostnaði. Fyrir hverja byrjaða klukkustund hækkar gjaldið úr 8.800 krónum í 35.000 kr. Gjald til eiganda sjúkrabifreiðar (Rauða kross Íslands) hækkar úr 660 krónum í 2.000 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra en sjúklingur greiðir alltaf að lágmarki fyrir 15 kílómetra.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. apríl 2011, Innlent Boðar breytingar á sjúkratryggingum
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Þjónustan verður æ dýrari fyrir sjúklinga
- Þriðjudagur, 3. apríl 2012, Innlent Vafasamt að bera fyrir sig trúnaði
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Innlent 644 stefnt vegna sjúklingagjalda
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Framlag heilbrigðisstofnana mikilvægt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































