„Liggur á að komast út úr þessu endemis rugli“
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að menn eigi að hætta að tala um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu eins og Íslendingar fái engu um það ráðið. „Við eigum að sjálfsögðu að segja samninganefndunum hvenær hentar okkur að kjósa.“
Þetta segir Ögmundur í pistli sem er birtur á heimasíðu hans.
„Ef þjóðin segir nei, þá getum við hætt að senda flugvélafarma af starfsfólki fyrir gríðarlega fjármuni til að fletta pappír suður í Brussel og notað tímann og peningana sem sparast til uppbyggilegra verka. Okkur liggur á að komast út úr þessu endemis rugli. Við skulum hætta að tala um tímasetningu á þjóðaratkvæðagreiðslu einsog við fáum engu þar um það ráðið, þetta sé nánast komið undir óviðráðanlegu náttúrulögmáli. Við eigum að sjálfsögðu að segja samninganefndunum hvenær hentar okkur að kjósa. Þær hagi sínum störfum í samræmi við það,“ segir Ögmundur.
Ósammála Össuri
Þá segir Ögmundur að margt ágætt hafi komið fram í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra í Kastljósi í gær. Ögmundur tekur hins vegar fram að hann hafi ekki verið sammála Össuri um allt.
„Þannig var ofsagt hjá honum að mínu mati að „þjóðin“ vildi fá að vita hvað kæmi út úr viðræðunum við ESB. Það er líka ofsagt hjá utanríkisráðherra að ESB/EVRU-gulrótin væri nú digrari og litfegurri en áður! Um hið síðara ætla ég ekki að fjölyrða, þar tala fréttir af efnahagsþrengingum og atvinnuleysi innan Evrópusambandsins og ógöngum evrunnar sínu máli,“ skrifar Ögmundur.
Ögmundur segir að þjóðin sé þrískipt í málinu. Hluti þjóðarinnar vilji ganga í ESB, óháð hvað komi út úr viðræðum um aðild Íslands. Annar hluti þjóðarinnar vilji vita hvað komi út úr viðræðum um undanþágur og tímabundna fresti frá regluverki Evrópusambandsins.
„Síðan eru það við hin, sem erum andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið, hvað sem út úr viðræðunum kemur enda sýni reynslan að undanþágur eru sjónarspil til bráðabirgða,“ segir Ögmundur.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson ESB-ruglið er flokkspólitík Samfylkingar -
Haraldur Haraldsson „Liggur á að komast út úr þessu endemis rugli“///þetta orð ... -
Jón Ingi Cæsarsson Ætti að kunna samningatækni. -
Margrét Haraldsdóttir Maður að mínu skapi! -
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir Gott að vita -
-
Jón Valur Jensson Ögmundur reynir að réttlæta eigin nefbeinsleysi eftir á – þó ... -
Jóhann Elíasson ORÐ Í TÍMA TÖLUÐ............ -
Ægir Óskar Hallgrímsson ESB er ekkert annað en pappírsstofnun...
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 25. febrúar 2012, Innlent Ögmundur: Ógeðfellt aðlögunarferli
- Mánudagur, 21. maí 2012, Innlent „Aldrei vitlausara að ganga í ESB"
- Mánudagur, 9. apríl 2012, Innlent Getum ekki beðið eftir ESB
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Hætt við nýjan flugvöll á Hólmsheiði
- Mánudagur, 27. febrúar 2012, Innlent Ögmundur skorar á Össur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































