Virðisaukaskattur á netinu
Margir hafa keypt sér rafbækur á góðum kjörum á Amazon.com, til að lesa í lestölvum. Nú verður lagður virðisaukaskattur á þær, og annað sem keypt er á netinu. Reuters
Þeir sem kaupa sér vörur og þjónustu á netinu þurfa von bráðar að borga virðisaukaskatt af nánast öllu því sem þeir kaupa þar. Í september síðastliðnum voru samþykkt lög á Alþingi, sem fólu í sér þá breytingu á lögum um virðisaukaskatt, að allir sem selja „rafrænt afhenta þjónustu“ til fólks sem býr á Íslandi eða fyrirtækja sem hafa hér starfsstöðvar, þurfa að skrá sig hjá hér lendum skattayfirvöldum og skila af sölunni virðisaukaskatti.
Í lögunum felst þó að þeir sem selja fyrir milljón krónur eða minna á hverju 12 mánaða tímabili skuli undanþegnir skattskyldunni og vekur það því spurningar um t.d. hvort sala á uppboðsvefnum ebay.com teljist skattskyld eða ekki.
Hins vegar er það ekki bara neysluvarningur sem seldur er á netinu heldur ýmiskonar tölvuþjónusta og hugbúnaðarþjónusta sem fólk og fyrirtæki nota við vinnu sína.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er unnið að því þar að setja reglugerð um framkvæmd þessa ákvæðis. Ekki hefur þar orðið vart við annað en samstarfsvilja frá stórum netfyrirtækjum á borð við Amazon.com, sem viðmælandi mbl.is segir vön því að skrá sig í þeim löndum þar sem kaupendur þjónustunnar búa. ESB hefur sett hliðstæða reglu og sömuleiðis tók Noregur upp svipað fyrirkomulag fyrir nokkru.
Íslenskur notandi tölvuþjónustu Amazon, eða Amazon Web Services, sendi mbl.is tölvupóst vegna tilkynningar sem hann fékk frá fyrirtækinu um að það myndi byrja að innheimta 25,5% virðisaukaskatt af þjónustunni frá og með 1. janúar, þar sem hann væri skráður á Íslandi. Hann kveðst nota þjónustuna bæði í vinnu sinni og persónulega og þetta komi því illa við hann.
Þótt fyrirtæki séu aðeins í startholunum núna við að byrja skattinnheimtuna, er lagaskyldan þegar komin á, með fyrrnefndum lögum. Ákvæðið kom inn í lögin frá efnahags- og skattanefnd Alþingis, samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneytinu, en ákvæðið hafði áður verið lagt fram sem lagafrumvarp á vorþingi en ekki komist í gegn vegna tímaleysis í þinglok.
Bloggað um fréttina
-
-
Pálmi Hamilton Lord Sækja um Taxfree frá USA -
Marinó G. Njálsson Lög sem ekki er hægt að framfylgja - Önnur leið ... -
Jón Óskarsson Ekkert mál fyrir rekstraraðila
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Engin áhrif á tollheimtuna
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Innlent Þarf ekki að greiða virðisaukaskatt
- Mánudagur, 30. maí 2011, Innlent Komast hjá virðisaukaskatti
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2011, Innlent Lækka vask á stafræna tónlist í 7%
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Netverslun í sögulegu hámarki
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú

































