Svikalogn í fyrramálið

Færð og veður verða með versta móti á morgun. stækka

Færð og veður verða með versta móti á morgun. Rax / Ragnar Axelsson

mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, sem vinnur spár fyrir Vegagerðina þessa dagana, segir að hætta sé á því að svikalogn verði suðvestanlands snemma á morgun í tvo til þrjá klukkutíma. Fólk sem hyggur á ferðalög þurfi því að hafa varann á sér þótt ef til vill líti út fyrir hið ágætasta ferðaveður framan af morgninum.

„Við fáum yfir nánast allt landið nokkuð djúpa lægð, sem gerist nú ekki svo oft. Hún verður orðin talsvert djúp við suðvesturströndina í fyrramálið og fer bara þvert yfir landið frá suðvestri til norðausturs. Með henni fáum við alls kyns veður sem er meira og minna af vondri tegund," segir Einar.

Fólk hafi varann á sér

„En af því að lægðarmiðjan fer nánast yfir Faxaflóann þá gerist það að það verður hálfgert svikalogn í fyrramálið, það styttir upp að mestu um miðjan morgun og verður hið ágætasta veður í fyrramálið en svo eins og hendi sé veifað brestur hann á með hvassviðri og mjög dimmri hríð á leiðinni austur fyrir fjall," varar hann við.

Veður verði svo vont fram eftir degi en verði orðið ágætt um það leyti sem jólin verða hringd inn. Hvort þetta rætist veltur þó allt á því, að sögn Einars, hvort lægðin fer þá leið sem nú lítur út fyrir. Það mun skýrast í kvöld og í nótt.

Veðrið sem fylgir lægðinni verður ef til vill óvenjulegt að öðru leyti líka. Ekki eru líkur á, eins og svo oft áður, að versta veðrið komi á undan skilum lægðarinnar, heldur  hláni með þessum skilum sunnan og austan til í nótt og í fyrramálið. Þó verður hríðarveður á fjallvegum eins og Hellisheiðinni í nótt og í Oddsskarði í fyrramálið.

Í fyrramálið versnar veðrið um allt norðvestanvert landið og spáir Einar ofanhríð í Bröttubrekku, á Holtavörðuheiði og Vatnaleið, frá því í fyrramálið og fram á daginn. Því sama spáir hann vestur á fjörðum, kannski örlítið skaplegra veðri við norðanvert Ísafjarðardjúp.

Ofsaveður fyrir norðan og austan annað kvöld

„En seinni partinn á morgun fer veður víðast annars staðar versnandi með hríðarveðri fyrir norðan og fyrir austan brestur hann á svona um það leyti sem fólk er að taka steikina úr ofninum eða halda til messu. Þá skellur hann á með norðan- og norðvestanátt, eiginlega bara ofsaveðri í kjölsogi lægðarinnar," segir Einar.

Það er því hætta á að sums staðar á landinu komist fólk jafnvel ekki í kirkjugarða eins og hefð er fyrir á aðfangadag.

Veðurstofan spáir um og yfir 40 m/s í hviðum

Veðurstofan fylgist einnig með veðrinu og sendi frá sér viðvörun nú um hádegisbilið. Lægð berst upp að landinu í nótt, dýpkar hratt og veldur sunnan hvassviðri og rigningu sunnantil snemma í fyrramálið en slyddu eða snjókomu til fjalla. Á Vestfjörðum er spáð norðan hvassviðri og snjókomu fram yfir hádegi.

Lægðin gengur norðaustur yfir land og síðdegis er spáð norðvestan stormi með snjókomu á austurhluta landsins. Vindhraði gæti þar farið upp í 23-28 metra á sekúndu og hviður yfir 40 m/s um og eftir kl. 18.

Landsmönnum er bent á að athuga vel bæði færð, veður og veðurspá áður en þeir leggja í ferðalög á milli landshluta því færð spillist mjög fljótt í veðri sem þessu.  Ljóst er að veður verður slæmt í öllum landshlutum á mismunandi tíma á morgun, og nauðsynlegt að gæta varúðar.

Nýjustu upplýsingar um veður og færð er að finna á heimasíðum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.

Vegfarendur eru einnig beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur, eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og nóttunni. Raunar eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside árg. 2003, 12" fellihýsi til sölu. heitt og kalt vatn, sólarsel...
Ducati sport classic 1000
Til sölu Ducati sport classic, árg. 2006 ekið 2500 km. Tveggja cyl. loftkælt. V...
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...
Til sölu húsbíll
Til sölu Húsbíll Til sölu Benz 307D 3,4L disel húsbíll árg.1981 Upplýsing. í s...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...