„Yndislegt og draumi líkast“

Mugison á einum af boðstónleikunum í gær. stækka

Mugison á einum af boðstónleikunum í gær. mbl.is/Einar Falur

„Þetta hljómar eins og klisja, en þetta var bara yndislegt og draumi líkast,“ segir Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, um þrjá boðstónleika sem hann hélt í Hörpunni í gærkvöldi.

Mugison er að eigin sögn mjög sáttur með tónleikana. „Þetta var næstum því of gott til þess að vera satt, það liggur við að maður sé með samviskubit, þetta var of gaman.“ Að sögn Mugisons var góð stemning á tónleikunum og bæði áhorfendur sem og strákarnir í hljómsveitinni „í geðveikum fíling“ ekki bara einu sinni heldur þrisvar í gærkvöldi. „Þetta var alveg fáránlegur dagur í gær,“ segir Mugison.

„Það gekk alveg rosavel, það var greinilega alveg fullt af fólki sem fékk sér súpu,“ segir Mugison aðspurður hvernig súpuveisla sem faðir hans, Guðmundur M. Kristjánsson, einnig þekktur sem Mugipapa, hélt fyrir tónleikana til styrktar Mæðrastyrksnefnd.

Að sögn Mugisons hefur hann fengið þær upplýsingar frá forsvarsmönnum Hörpu að um 1600-1700 manns hafi verið á hverju „giggi“. „Já, þetta var eiginlega bara auðveldara en mig þorði að gruna svona líkamlega, það eru náttúrlega helvítis átök að öskra eins og svín í einn og hálfan tíma, þrisvar sinnum,“ segir Mugison og bætir við „en samt einhvern veginn eftir síðasta giggið, þarna rétt fyrir tvö í nótt, þá var samt eitthvað svona í manni „djöfullinn, maður hefði átt að taka fjögur“, að því okkur fannst við allir eiga inni einhverja orku.“

Mugison segist hafa fengið sér viskídreitil til þess að ná sér niður eftir tónleikatörnina enda hafi blóðið verið fullt af adrenalíni. „Svo sofnaði ég ekki fyrr en klukkan sex í morgun,“ segir Mugison og bætir við: „Þetta er svo mikið adrenalín, ég hugsa að allir íþrótta- og tónlistarmenn þekki þetta, þegar svona rosalegt stuð er í gangi fer eitthvað út í blóðið, það er endalaus orka í gangi og svo krassar maður bara.“

Að sögn Mugisons er kaffidrykkja besta leiðin til þess að ná sér á strik á ný. „Ég held að ég sé búinn með tvo tvöfalda expressó síðan ég vaknaði og þriðji hlýtur að detta inn bráðum,“ segir Mugison.

„Ég vil skila kærri kveðju til allra sem komu og voru með okkur, þetta var stórkostleg stund,“ segir Mugison að lokum.

Einar Falur Ingólfsson fylgdi Mugison eftir á tónleikadeginum og hermir af viðburðinum í máli og myndum í Sunnudagsmogganum um helgina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss. Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Er einnig ...
Hrossaskítur á sumarhúsalóðina
Nóg til, taktu eins og þú vilt. Afar gott að setja nýjan hrossaskít undir ungar ...
Sportkerra
Sportkerrur fyrir börn, heildsöluverð, lagersala. www.hjolavagnar.is...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...