Skafrenningur og nokkuð blint

Mynd úr safni. Frá Blönduósi.
Mynd úr safni. Frá Blönduósi. mbl.is/Jón Sigurðsson

Éljagangur verður suðvestan- og vestanlands meira og minna í dag, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands.

Allhvass vindur og skafrenningur verður með þessu og nokkuð blint, s.s. á Suðurnesjum, Hellisheiði, Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hvessir á Norðurlandi upp úr miðjum degi, skafrenningur og blint á Öxnadalsheiði fljótlega upp úr hádegi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert