Býr áfram á Íslandi

Ólöf Nordal alþingismaður
Ólöf Nordal alþingismaður mbl.is/Árni Sæberg

„Það verður engin breyting hjá mér en ég er afar stolt af honum,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en eiginmaður hennar, Tómas Már Sigurðsson, hefur verið ráðinn yfirmaður Alcoa í Evrópu. „Ég bý hér áfram með börnin sem eru í skóla hér.“

Ólöf segir að vegna starfa sinna sem forstjóri Fjarðaáls á Reyðarfirði hafi Tómas verið mikið á faraldsfæti síðustu árin og breytingin því ekki mikil fyrir þau.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert