Konum með sílikonpúða veitt ráðgjöf

stækka

Reuters

PIP-brjóstafyllingar frá franska fyrirtækinu Poly Implant Prothese hafa verið notaðar hér á landi í um tvo áratugi og hafa um 400 konur fengið slíkar fyllingar. Lýtalæknar sem hafa notað þessa tegund brjóstafyllinga munu nú senda þeim konum bréf með upplýsingum og ráðgjöf um hvað þær þurfi að gera. Þetta kemur fram á vef Lyfjastofnunar.

Í mars 2010 voru PIP-brjóstafyllingar teknar af markaði í Evrópu vegna meintra lélegra gæða silikonefnisins sem notað var. Framleiðandinn reyndist hafa notað annað efni en það sem hann fékk vottað fyrir CE gæðamerkingu á brjóstafyllingum fyrirtækisins.

Á Þorláksmessu lýsti franska lyfjastofnunin, Afssaps, því yfir að ekki væri sýnt fram á tengsl PIP brjóstafyllinga og krabbameins. Franskur sérfræðingahópur komst að þessari niðurstöðu eftir ítarlega skoðun á tugþúsundum kvenna.

Merki Poly Implant Prothese (PIP)

Merki Poly Implant Prothese (PIP) Reuters

Heilbrigðisöryggisnefnd Evrópusambandsins hefur fundað um málið og fengið upplýsingar frá mörgum Evrópulöndum. Niðurstaða hennar er að ekki séu tengsl á milli krabbameins og PIP brjóstafyllinga.

Algengasta aukaverkun brjóstafyllinga er rof í fyllingunni sem á almennt við um brjóstafyllingapúða. Slíkt gerist í um 1-2% tilvika og leiðir til leka sílíkons í nærliggjandi vefi.

Niðurstöður rannsókna í Frakklandi gefa til kynna að PIP brjóstafyllingar leki meir en aðrar fyllingar en breska eftirlitsstofnunin telur að svo sé ekki.

Breska lyfjastofnunin, MHRA, hefur einnig rannsakað hvort sílikonefnið sem notað var í PIP brjóstafyllingarnar hafi haft einhver eiturverkandi áhrif og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Bretar mæla því ekki með að konur láti fjarlægja PIP brjóstafyllingar.

Sílikon-brjóstapúðar frá PIP

Sílikon-brjóstapúðar frá PIP Reuters

Embætti landlæknis og Lyfjastofnun ráðleggja konum sem hafa áhyggjur af stöðu brjóstafyllinga sinna að hafa samband við lýtalækninn sem framkvæmdi aðgerðina til að fá upplýsingar um tegund brjóstafyllingarinnar og ráðleggingar um hvað beri að gera, að því er fram kemur á vef Lyfjastofnunar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Dekurrófa til sölu - skoða skipti á jeppa
HÚSBÍLL TIL SÖLU skoða skipti á jeppa Fiat Joint 148 árg. 2005 ekinn 40 þús. ...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
Toyota RAV4 2WD árgerð 2003 Verð 690 þ
120 þ.km, 5 dyra, Beinsk, 2WD, SRS, ABS, bremsur ok, Heilsársdekk+3vet, CD OK, s...
Stóll á reiðhjól
Til sölu þessi stóll. Hann er nánast ónotaður . Bleikur hjálmur getur fylgt. Ver...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...