Útskrifuð af gjörgæslu

mbl.is/ÞÖK

Búið er að útskrifa konu af gjörgæsludeild sem slasaðist í umferðarslysi á Vesturlandsvegi við Álfsnes í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum var konan útskrifuð á almenna deild í gær og er hún á batavegi.

Auk konunnar voru karlmaður og barn flutt með sjúkabifreið á slysadeild eftir slysið en þau voru öll í sama bíl. Líkt og fram hefur komið slasaðist maðurinn en þó ekki alvarlega. Þá sagði læknir í samtali við mbl.is á annan dag jóla að líðan barnsins væri góð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert