Snjóþyngsti veturinn í rúman áratug
Margir áttu í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar í morgun enda mikill snjór á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að ekki hafi verið svo snjóþungt í höfuðborginni í rúman áratug.
Einar segir að svona kafli með samfelldum snjó suðvestanlands sé þegar orðinn allóvenjulegur. Það tók upp á aðfangadag (þá voru reyndar talsverð svellalög). Annars hefur jörð verið talin snævi þakin frá 25. nóvember.
„Segja má með nokkurri vissu að ekki hafi verið svo snjóþungt í höfuðborginni í rúman áratug, en veturinn 1999-2000 þótti snjór með meira móti. Þá var alhvítt 6. febrúar til 17. mars og snjódýptin var þá mest 28 cm (27. febrúar).
Í desember þann vetur var snjór yfir lengst af nema í um vikutíma um jólin. Nú er hins vegar mun meiri snjór en var þá og leita þarf aftur til ársins 1984 til að finna álíka snjóþungan desember og nú," skrifar Einar á bloggvef sinn.
Eins og færðin er í Reykjavík í dag er kannski best að komast leiðar sinnar á gönguskíðum mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Ökumenn komnir úr æfingu
Einar segir óhætt að fullyrða að eldri ökumenn suðvestanlands séu komnir úr allri æfingu við akstur í þeirri ófærð sem nú er. Yngri ökumenn þekkja aðstæðurnar illa eða alls ekki.
„Eftir hagfellda vetrartíð suðvestanlands í allmörg ár eru líka fleiri ökutæki vanbúin til að komast í gegnum þæfinginn heldur en var hér fyrir 20 til 30 árum þegar fjórhjóladrifsbíll þótti sjálfsagður fyrir búsetu í Árbænum eða í Breiðholti sem þá voru efstu byggðir höfuðborgarsvæðisins. Þetta var gullaldartími Lödu Sport-jeppanna og fjórhjóladrifinna Subaru-jálkanna á árunum upp úr 1980," skrifar Einar á bloggvef sinn.
Myndasyrpa: Ófærðin á höfuðborgarsvæðinu
Mikill snjór er á höfuðborgarsvæðinu og erfið færð víða
Birtingardagur: Fimmtudaginn, 29. desember 2011
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Innlent „Þvottekta óveður"
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Hrollurinn að baki og hlýindi eru í kortunum
- Þriðjudagur, 4. janúar 2011, Innlent Vindhviða mældist 69 metrar á sekúndu
- Sunnudagur, 1. maí 2011, Innlent Ekki snjóþyngra síðan 1987
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Snjóþungur og illviðrasamur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































