56.000 afbrot skráð
Rúmlega 56.000 afbrot hafa verið skráð hjá lögreglu á árinu sem er að líða, það er frá 1. janúar 2011 til 29. desember 2011. Þetta kemur fram í samantekt embættis ríkislögreglustjóra á bráðabirgðatölum um fjölda brota á öllu landinu árið 2011.
Heildarfjöldi skráðra afbrota í fyrra var 73.525.
Í samantektinni kemur fram að rúm 12.000 hegningarlagabrot hafi verið skráð hjá lögreglu, sem sé um 17% fækkun frá árinu 2010. Þá segir að þar hafi auðgunarbrot og innbrot/þjófnaðir mestu áhrifin. Þessum brotum fjölgaði frá árinu 2005 til 2009 en fækkaði aftur árið 2010 og 2011.
110 umferðarlagabrot á dag
Umferðarlagabrotin voru um 40.000 á árinu sem jafngildir tæpum 110 brotum á dag að meðaltali. Þau náðu hámarki árið 2007 en hefur farið fækkandi síðustu ár. Þá hafa þau aldrei verið eins fá og í ár, síðan árið 2005. Segir að þessa fækkun megi að hluta rekja til bilana í hraðamyndavélum á vegum þar sem umferð sé mikil.
Sérrefsilagabrot voru tæplega 3.900 talsins, sem er fækkun frá í fyrra.
Þegar litið er til fjölda brota, greint eftir helstu brotaflokkum, má sjá að fækkun hefur orðið í öllum flokkum, milli áranna 2010 og 2011, að undanskildum fíkniefna- og kynferðisbrotum.
Rúmlega 6.000 þjófnaðir og innbrot
Þegar litið er til samanburðar á fjölda brota á árinu miðað við meðaltal brotanna árin 2005 til 2010 má sjá að fækkun er í öllum brotaflokkum að undanskildum fíkniefna- og kynferðisbrotum sem fjölgaði. Áfengislagabrotum fækkaði mest eða um tæp 43%, brotum gegn friðhelgi um 21% og manndrápum og líkamsmeiðingum um tæp 18%.
Á árinu 2011 voru þjófnaðir og innbrot 87% allra auðgunarbrota en skráðir voru 4.130 þjófnaðir og 1.909 innbrot. Þjófnaðir eru því um 800 brotum færri í ár en í fyrra eða um 16% færri. Innbrotum fækkaði um 33% frá árinu áður og hafa ekki verið færri síðan árið 2005. Framin voru að meðaltali um 11 þjófnaðir á sólarhring og um fimm innbrot.
Brot vegna framleiðslu fíkniefna hefur fækkað um 28 brot, eða tæp 12% frá árinu 2010. Brot vegna innflutnings og sölu og dreifingar hefur einnig fækkað. Hins vegar hafa brot vegna vörslu og neyslu fjölgað og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2007. Fíkniefnabrotum fjölgaði frá 2010 til 2011. Brotin voru 1.738 á árinu 2011 en 1.537 árið á undan.
Lagt hald á 31 kg af amfetamíni og 78.000 e-töflur
Lögregla og tollgæsla hafa lagt hald á tæp 30 kg af maríjúana það sem af er ári 2011, tæp 2 kg af hassi, rúm 31 kg af amfetamíni og rúmlega 78.000 e-töflur. Þá var lagt hald á tæp 4 kg af kókaíni.





































