Springa í lítilli hæð
Skotterturnar Kópavogur og Breiðholt, sem Bomba.is selur, hafa verið innkallaðar vegna þess að sumar þeirra skjóta upp flugeldum sem springa í lítilli hæð. Þetta kom í ljós við prófanir sem starfsmenn Bombu.is gerðu á tertunum.
„Við skjótum öllum tertum upp. Í fyrstu atrennu voru þær allar í lagi,“ segir Arnar Barðdal, sem starfar fyrir Bombu.is, í samtali við mbl.is. Framleiðslugalli í Kópavogs- og Breiðholts-skottertunum hafi svo komið í ljós næstu atrennum. Aðspurður segir Arnar að engir gallar hafi komið fram í öðrum skottertum.
Það liggur ekki fyrir hversu margar tertur þarf að innkalla að sögn Arnars. „Við áttum mikið af þessum tertum. Þær voru vinsælar og rosalega öflugar.“
Aðspurður segir hann að tveir séu búnir að setja sig í samband við fyrirtækið vegna gölluðu tertnanna. „Við höfum líka verið að hringja í fólk sem við þekkjum, og vissum að hafði keypt svona hjá okkur,“ segir Arnar. Hægt er að fá terturnar endurgreiddar eða aðra sambærilega vöru í staðinn. Bomba.is er til húsa í Víkurhvarfi 6 í Kópavogi.
Gæta skal ýtrustu varúðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því í morgun að Bomba.is hefði orðið að innkalla terturnar.
„Lögreglan vill jafnframt nota þetta tækifæri og minna aftur á að óheimilt er að breyta á nokkurn hátt skoteldi þannig að hann hljóti aðra eiginleika en framleiðandi hans ætlaðist til. Við meðferð og vörslu skotelda skal ýtrustu varúðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leiðbeiningum. Við brennu og í næsta nágrenni við hana er öll meðferð flugelda og annarra skotelda sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftir tendrun bönnuð. Þar er aðeins leyfilegt að nota stjörnuljós og blys, þó ekki skotblys.
Að síðustu hvetur lögreglan alla til að nota þar til gerð hlífðargleraugu þegar flugeldar eru annars vegar,“ segir á vef lögreglunnar.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. desember 2011, Innlent Gölluð skotterta innkölluð
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Innlent Óskað álits umboðsmanns
- Mánudagur, 21. maí 2012, Innlent Íslendingar eru sólgnir í Ikea-mat
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































