Mörður gagnrýnir Kristrúnu

Mörður Árnason.

Mörður Árnason. mbl.is

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Kristrúnu Heimisdóttur, fyrrverandi aðstoðarmann Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem utanríkisráðherra, fyrir opinber skrif hennar um flokksstjórnarfund samfylkingarmanna á föstudag. Mörður setur skrifin í samhengi við hrunið.

Sem kunnugt er stendur mikil umræða fyrir dyrum innan Samfylkingarinnar vegna starfs umbótanefndar um þátt flokksins í hruninu. Mörður segir nefndarstarfið valda titringi.

„Það er líka augljóst að við tölum ekki nógu mikið saman í Samfylkingunni. Við höfum til dæmis ekki gert almennilega upp við þátttökuna í hrunstjórninni þrátt fyrir umbótanefndina. Í gær voru einmitt áberandi í liði óánægðra ýmsir hugmyndafræðingar og burðarmenn þess stjórnarsamstarfs – þar á meðal Kristrún Heimisdóttir aðstoðarmaður sem í dag skrifar sérkennilegan pistil út frá nýjasta átrúnaðargoði sínu, aumingja Árna Páli Árnasyni.“

Samræðustjórnmálin sýndarmennska

Á sama tíma og Mörður leggur áherslu á samræður gerir hann lítið úr áherslu Ingibjargar Sólrúnar á samræðustjórnmál og segir þau ekki hafa verið iðkuð í Samfylkingunni á tímum hennar sem formanns.

„Svo komu tímar Ingibjargar Sólrúnar – og þá hélt sýningarhaldið áfram á þessum fundum, nema nú voru höfð viðamikil pallborð og sérdagskrár þar sem gáfumenn úr akademíunni töluðu yfir höfuðið á venjulegu flokksfólki. Samræðustjórnmálin sem Solla kenndi sig við, þau voru einhvernveginn stunduð alstaðar annars staðar en í flokknum.“

Óánægja með Steingrím

Mörður segir marga samfylkingarmenn hafa viljað losna við Steingrím J. Sigfússon úr embætti fjármálaráðherra.

„Að ætla – einsog heyrðist á sumum í gærkvöldi – að stefna stjórnarsamstarfinu í voða af því að Steingrímur væri sestur þangað, það er undarleg ævintýramennska. Nú má vel vera að Steingrímur sé hinn versti maður, en þeir hinir sömu sem í gær voru reiðastir Jóhönnu vegna þessa glapræðis, þeir sögðu ekki múkk þegar illmenninu mikla var afhentur sjálfur ríkiskassinn á silfurfati vorið 2009.

Og þeir sögðu reyndar heldur ekki neitt þegar Árni Mathiesen varð fjármálaráðherra með stuðningi Samfylkingarinnar. Einar K. Guðfinnsson varð kvótakerfislénsherra í umboði flokksins. Þegar Samfylkingin setti yfir heilbrigðisþjónustuna sjálfan Guðlaug Þór Þórðarson.“

„Bólgnar hugmyndir Árna Páls um eigið mikilvægi“

Mörður víkur einnig að þeim metnaði Árna Páls að leiða Samfylkinguna.

„Hann hefur gert margt gott sem ráðherra félagsmála og svo efnahags- og viðskiptamála, snarpur í málafylgju, duglegur, kann að laða menn til samstarfs. Hann hefur líka haft svolítið of bólgnar hugmyndir um eigið mikilvægi og forustuhlutverk sem leiðtoga einhvers arms „krata“ og Ingibjargar-Sólrúnar-sinna, sem ég hef aldrei skilið hvað gengur út á ef hann er til yfirhöfuð. Kannski þess vegna hafa íhald og Framsókn reynt að gera hann að „sínum manni“ í ríkisstjórninni og borið á hann klígjukennt oflof.“

Pistil Marðar má lesa hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
Fertugur er í dag Haraldur Guðni Eiðsson
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...