Ók á Höfðabakkabrúna

mbl.is/Hjörtur

Bílstjóri missti stjórn á bíl sínum undir Höfðabakkabrúnni í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld með þeim afleiðingum að hann ók á brúarstólpa. Engin slys urðu á fólki, bíllinn skemmdist nokkuð, en er þó ökufær að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þá lentu tveir bílar saman í Árbæ rétt fyrir klukkan sex. Þar var einn fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert