Faldi sig í snjóskafli

Karlmaður á þrítugsaldri var dreginn upp úr snjóskafli í Háaleitishverfinu um kvöldmatarleytið í gær og var umsvifalaust handtekinn.

Að sögn lögreglu hafði maðurinn skömmu áður ekið fólksbíl og hefði í raun verið á flótta undan lögreglunni og gripið til þess ráðs að fela sig í snjóskafli.

Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert