Fjölgun flokka alþjóðleg þróun

Kjósendur kunna að hafa óvenju mikið val í næstu þingkosningum. stækka

Kjósendur kunna að hafa óvenju mikið val í næstu þingkosningum. Ómar Óskarsson

mbl.is Eftir Baldur Arnarson

„Aukinn fjöldi flokka og meiri hreyfanleiki kjósenda milli flokka hefur ekki bara átt sér stað á Íslandi, heldur verið nokkuð almenn tilhneiging í flokkakerfum í Vestur-Evrópu síðustu 40 ár,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Tilefnið er fyrirhuguð fjölgun flokka á Íslandi en eins og rakið var á mbl.is í gær gætu fimm ný stjórnmálaframboð litið dagsins ljós fyrir næstu kosningar; nýtt framboð með Lilju Mósesdóttur í fararbroddi, þá væntanlegt framboð Guðmundar Steingrímssonar og félaga, svo Lýðfrelsisflokkurinn, flokkur ESB-sinna, þá Hægri-grænir, undir forystu Guðmundar Franklíns Jónssonar, og loks Breiðfylkingin, bræðingur fólks úr Borgarahreyfingunni, Hreyfingunni, Frjálslynda flokknum, samtökum fullveldissinna og fólks úr fleiri áttum.

Sem kunnugt er eiga fimm flokkar nú sæti á Alþingi. Færi svo að öll nýju framboðin næðu tilskildu lágmarki stuðningsmanna til að geta boðið fram yrðu því tíu stjórnmálaflokkar á kjörseðli næstu þingkosninga, að óbreyttu vorið 2013.

Fjórar meginhreyfingar verið hryggjarstykkið

Ólafur rifjar upp aðdraganda íslenska flokkakerfisins.

„Síðan um 1930 hafa fjórar meginhreyfingar verið hryggjarstykkið í íslenska flokkakerfinu: hægri flokkur, þ.e. Sjálfstæðisflokkur, bænda/miðflokkur, þ.e. Framsóknarflokkur, jafnaðarmannaflokkur, þ.e. Alþýðuflokkur og Samfylking, og vinstri sósíalistar, þ.e. Kommúnistaflokkur, Sósíalistaflokkur, Alþýðubandalag og Vinstri græn.

Aðrar hreyfingar buðu stundum fram, en fram til 1971 náðu aðeins tveir slíkir flokkar á þing: Bændaflokkur á 4. áratug og Þjóðvarnarflokkur 1953. Síðan 1971 hefur hins vegar verið miklu meira umrót á kjósendamarkaði og fjöldi framboða verið frá 6-11. Síðan 1971 hafa oftast verið 5 flokkar á þingi, en þó aðeins fjórir 1978, sex flokkar 1983 og 1995 og sjö flokkar 1987, en þá kusu um 25% kjósenda aðra flokka en hina hefðbundnu fjóra - langhæsta talan frá upphafi núverandi flokkakerfis. Langlífasti „nýi“ flokkurinn var Kvennalisti, sem lifði fernar kosningar.“

Almenn tilhneiging í flokkakerfum á Vesturlöndum

Ólafur segir þróunina ekki einskorðast við Ísland.

„Aukinn fjöldi flokka og meiri hreyfanleiki kjósenda milli flokka hefur ekki bara átt sér stað á Íslandi, heldur verið nokkuð almenn tilhneiging í flokkakerfum í Vestur-Evrópu síðustu 40 ár.

„Nýju“ framboðin hafa verið af ýmsum toga. Sum tengdust m.a. beint tilraunum til sameiningar vinstri manna, t.d. Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1971 og Þjóðvaki 1995. Mörg voru leidd af foringjum sem höfðu klofið sig frá sínum „gömlu“ flokkum, t.d. Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1971, Bandalag jafnaðarmanna 1983, Borgaraflokkur 1987 og Þjóðvaki 1995.

Sum voru hugmyndaframboð úr grasrótinni, t.d. Kommúnistar og Fylkingin á 8. áratugnum, Kvennalistinn 1983, Kristilegir 1995 og Borgarahreyfingin 2009. Sum voru grín- eða háðsframboð, t.d. Framboðsflokkur 1971 og Sólskinflokkur 1979.“

Kenningar um aukinn hreyfanleika

Ólafur heldur áfram.

„Ýmsar skýringar hafa verið settar fram um aukinn fjölda flokka og meiri hreyfanleika kjósenda í kosningum. Mikilvægast er kannski að áhrif félagsgerðar á kosningahegðun hafa víða minnkað og fleiri kjósendur orðið gagnrýnir á hefðbundna flokka og stjórnmálastarfsemi.

Áhugi kjósenda á stjórnmálum hefur hins vegar ekki minnkað, þó þátttökuform hafi víða breyst,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
GOLFPARADÍS Í VENTURA,SÓLSKIN Í ORLANDO
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Flugmiðar á frábæru verði til Alicante fram og tilbaka
Vegna forfalla eru til sölu flugmiðar fyrir fjóra til Alicante báðar leiðir. Br...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...