Sveiflukennt veðurfar árið 2011

stækka

mbl.is/Rax

Morgunblaðið Guðni Einarsson gudni@mbl.is

Árið 2011 einkenndist af miklum sveiflum og breytingum í veðurfari, að mati Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Í samantekt Veðurstofunnar segir m.a. að tíðarfar hafi lengst af verið hagstætt um meginhluta landsins. Undantekningin var síðari hluti vorsins og fyrri hluti sumars þegar tíð var óhagstæð um stóran hluta landsins. Meðalvindhraði á mönnuðum stöðvum var sá mesti frá 1993.

Í heild var árið hlýtt, þrátt fyrir tvö mikil kuldaköst. Annað kom í fyrravor, einkum norðaustanlands. Hitt kuldakastið gerði um allt land í lok nóvember og fram í desember. Hitinn í Reykjavík var um 1°C ofan við meðallag áranna 1961-90 og 0,4°C ofan við meðallag áranna 1931-60 að sögn Veðurstofunnar. Árið 2011 var það 16. í röð þar sem hiti var ofan meðallags í Reykjavík og 17.-18. hlýjasta ár frá upphafi samfelldra mælinga 1871.

Nokkur veðurmet voru slegin á árinu. Apríl var sá hlýjasti á Austurlandi frá upphafi mælinga og var hitinn um fjórum stigum yfir meðallagi. Einar veðurfræðingur skrifar að það sé án efa athyglisverðasta veðurmet ársins. Þá bendir hann á það að meðalloftþrýstingur hafi aldrei orðið jafn lágur í Reykjavík og hann var á frá september til desember 2011. Apríl var mjög úrkomusamur suðvestanlands og ekki nema einn þurr dagur í Reykjavík. Úrkoma hefur einungis einu sinni áður mælst meiri í Reykjavík. Úrkoman í Reykjavík var um 10% umfram meðallag, að sögn Veðurstofunnar.

Vorið var einkar kalt og entist kuldinn fram eftir sumri. Mikill snjór var á Austur- og Norðausturlandi. Einar bendir á að fara þurfi marga áratugi aftur í tímann til að finna jafn kaldan júnímánuð norðaustanlands og var í fyrra. Ekki hafði komið sólríkara sumar í Reykjavík frá því árið 1929.

Mikið rigndi í haust og varð október sá úrkomusamasti sem mælst hafði t.d. í Æðey, á Hrauni á Skaga og Grímsstöðum á Fjöllum. Árinu lauk með miklum snjóþyngslum á Suðurlandi. Snjódýpt hefur ekki mælst meiri í Reykjavík í desember en að morgni þess 29., 33 sentimetrar. Ekki höfðu komið fleiri alhvítir dagar í Reykjavík frá upphafi samfelldra snjóathugana og á Akureyri var alhvítt allan desember.

Óvenju kaldur desember

Óvenjukalt var framan af desembermánuði en síðari hlutinn var nærri meðallagi hvað hita áhrærir. Snjór var þaulsetinn á jörðu um mestallt land og mánuðurinn í hópi allra snjóþyngstu desembermánaða um landið suðvestanvert. Slæma hálku gerði í blotum síðari hluta mánaðarins og víða var freði á jörð í lok hans.

Meðalhiti í Reykjavík var -2,0 stig og er það 1,7 stigi undir meðallagi. Ekki hefur verið jafnkalt í desember í Reykjavík síðan 1981. Á Akureyri var meðalhitinn -4,1 stig og er það 2,2 stigum neðan meðallags. Þetta er kaldasti desember á Akureyri síðan 1985.

Hlýjast í Surtsey en kaldast í Sandbúðum

Hæstur varð meðalhiti í mánuðinum í Surtsey, 1,3 stig, en lægstur í Sandbúðum -10,4 stig. Lægsti meðalhiti í byggð var í Möðrudal og í Svartárkoti, -7,8 stig á báðum stöðvum. Hæsti hiti í mánuðinum mældist 13,2 stig á Dalatanga þann 22. Þann sama dag og stað mældist hæsti hiti mánaðarins á mannaðri stöð, 12,0 stig. Lægsti hiti mánaðarins mældist við Upptyppinga þann 8., -27,8 stig. Lægsti hiti í byggð mældist við Mývatn þann 6., - 27,3 stig. Lægsti hiti á mannaðri veðurstöð mældist á Torfum í Eyjafjarðarsveit þann 6., -24,1 stig.

Fjögur ný dægurmet lágmarks voru sett fyrir landið allt í kuldanum snemma í mánuðinum. Þann fjórða fór frost í -24,4 stig á Brúarjökli og daginn eftir í -25,8 stig á sama stað; eldri met voru frá 1936 og 1999. Þann 6. mældist frostið við Mývatn -27,3 stig og þann 7. var nýtt dægurmet einnig slegið við Upptyppinga þegar frostið fór í -27,0 stig. Eldri met þessara beggja daga voru nýleg.

Mesta snjódýpt í desember í Reykjavík

Óvenjusnjóþungt var í mánuðinum, sérstaklega var snjólagið óvenjulegt um landið sunnanvert. Í Reykjavík voru 29 dagar alhvítir og tveir töldust flekkóttir en enginn alauður, snjólagið varð því 97%. Að meðaltali eru 11 alhvítir dagar í desember í Reykjavík. Frá því að samfelldar athuganir á snjóhulu hófust í Reykjavík 1921 hafa mest orðið 25 alhvítir dagar í desember. Vitað er að í desember 1893 voru 27 alhvítir dagar í höfðuborginnni.

Að morgni þess 29 mældist snjódýpt í Reykjavík 33 cm og hefur þar aldrei mælst meiri í desember.

Á Akureyri var alhvítt allan mánuðinn, það gerðist síðast í desember á Akureyri 1999. Að meðaltali eru alhvítir dagar 22 í desember á Akureyri.

Sjá nánar hér

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SKRIFBORÐSSTÓLL GOTT VERÐ
er með nokkra góða stóla verð frá 5 þús sími 869-2798...
TIL SÖLU VÍNRAUÐ TOYOTA COROLLA
Til sölu vínrauð Toyota Corolla, árgerð 1993 . Ekinn 165.0...
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...