Skora á ráðherra að draga breytingar til baka
Hópur einstaklinga hefur sett af stað undirskriftasöfnun á netinu þar sem skorað er á Guðbjart Hannesson velferðarráðherra að draga til baka breytingar á greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna tæknifrjóvgunarmeðferða.
Í tilkynningu segir:
„Það er afar kostnaðarsamt ferli að eignast barn með tæknifrjóvgun og varð enn dýrara um nýliðin áramót þegar hið opinbera hætti að taka þátt í kostnaði fyrstu meðferð tæknifrjóvgunar. Slík meðferð kostar nú tæpar 400 þúsund krónur og greiðist alfarið af þeim aðila sem undir meðferðina gengst. Áður voru niðurgreidd um 40% kostnaðar. Heppnist fyrsta meðferðin ekki, sem er mjög líklegt, greiðir ríkið tvo þriðju af kostnaði við næstu fjórar meðferðir en ekkert eftir það. Eigi fólk barn fyrir fær það aftur á móti engar endurgreiðslur frá ríkinu.
Með þessum aðgerðum, sem geta reynst einstaklingum sem þrá að eignast barn afar þungbærar, áætlar ríkið að spara alls um 30 miljónir króna á ári. Slík upphæð er ekki mjög há fyrir íslenska ríkið en getur þýtt að efnaminna fólk hefur ekki sömu möguleika og aðrir til að eignast börn. Þannig valda breytingarnar mismunun á grundvelli efnahags fyrir fólk sem er gjarnan í erfiðum aðstæðum.
Við skorum á Guðbjart Hannesson og íslensk yfirvöld að gera enn betur með því að þoka sér nær Norðurlöndum hvað málefni tæknifrjóvgana varðar. Við bendum á að í Noregi greiðir fólk aðeins lyfjakostnaðinn af frjóvgunarmeðferðum og í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi getur fólk farið í allt að þrjár tæknifrjóvganir fyrir brot af þeim kostnaði sem fólk ber hérlendis.
Við bendum á að fjölmargir einstaklingar og pör eru í þeirri stöðu að geta ekki átt börn án aðstoðar. Lyfjakostnaður tengdur frjóvgunum hefur margfaldast frá hruni og það hefur kostnaður við frjóvganir einnig gert. Það að ríkið skuli nú einnig draga úr stuðningi sínum við fólk sem leitar eftir slíkri aðstoð þýðir einfaldlega að slíkt val verður ekki allra.
Það eiga ekki að vera forréttindi útvalinna að geta átt börn á Íslandi,“ segir í tilkynningu.
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 18. desember 2011, Innlent Mikill sparnaður í þunglyndislyfjum
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Innlent Færri fara í tæknifrjóvganir
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Sérkennileg starfsmannastefna
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Þurfa að greiða tæknifrjóvgun að fullu
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Innlent Fækkar um 107 starfsmenn
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú

































