Nýju framboðin sameinist

Mótmæli á Austurvelli í október 2010. stækka

Mótmæli á Austurvelli í október 2010. Ómar Óskarsson

Nokkur af nýju framboðunum sem um er rætt vegna þingkosninganna á næsta ári ættu að sameinast og þannig tryggja að atkvæðin sem þau fá fari ekki til spillis þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Þetta er mat Guðbjörns Guðbjörnssonar, eins af stofnendum Lýðfrelsisflokksins.

„Rökin eru þau að ég er ansi hræddur um að ef framboðin gangi ekki sameinuð fram, sérstaklega framboðin til vinstri, muni fólk þegar á hólminn er komið kjósa Vinstri græna eða Samfylkinguna af sama ótta og það hefur alltaf gert þegar það hefur kosið þessa flokka.

Það er hrætt við að atkvæði þeirra falli annars dautt niður. Það mun óttast að atkvæðin muni dreifast á of marga flokka og það því kjósa eftir hinum hefðbundna vinstri/hægri ás í stjórnmálunum,“ segir Guðbjörn.

Á líka við um hægrimenn

Guðbjörn segir stærstu flokkana ekki munu standa fyrir grundvallarbreytingum á íslensku samfélagi. Því sé brýnt að fólk hafi tiltrú á nýjum valkostum.

„Óttinn við að atkvæði fari í súginn á líka við um hægrimenn. Sú hætta er fyrir hendi að fólk kjósi Sjálfstæðisflokkinn af því að það kýs hægristefnu. Hætt er við að fólk muni segja sem svo að það lítist vel á nýtt framboð til hægri en að það komist að þeirri niðurstöðu að atkvæðið muni fara í súginn.

Ég skil þessa hræðslu fólks. En við náum aldrei fram breytingum á þjóðfélaginu með fjórflokknum sem við búum við í dag. Það er borin von. Við sáum það á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins að það er engin leið til að breyta því hverjir ráða þar ferðinni. Gamla flokksklíkan ræður þar öllu. Flokkurinn virðist ekki getað endurnýjað sig.“

Aðspurður um áhuga Lýðfrelsisflokksins á samstarfi við aðra flokka segir Guðbjörn að á þessu stigi komi aðeins til greina að fara í samstarf með Guðmundi Steingrímssyni og félögum. Sú hugmynd sé hins vegar á algjöru byrjunarstigi og hafi ekki verið rædd við Guðmund. Því sé með öllu ótímabært að fara að velta fyrir sér slíkri sameiningu.

Rætt um sjö ný framboð

Eins og fréttavefur Morgunblaðsins rakti í vikunni undirbýr Lilja Mósesdóttir þingmaður nýtt framboð sem kynnt verði síðar á árinu. Þá er undirbúningur Guðmundar Steingrímssonar að nýju framboði í fullum gangi sem og hjá Guðmundi Franklín Jónssyni og félögum í Hægri-grænum. Hefur síðarnefndi flokkurinn fengið listabókstafinn G.

Fjórða framboðið sem um er rætt er svonefnd Breiðfylking fólks úr Hreyfingunni, Frjálslynda flokknum og öðrum áttum. Fimmta framboðið er enn sem komið er aðeins til í hugarfylgsnum stjórnmálaskýrenda en þar er um að ræða mögulegt framboð undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Var meðal annars vikið að þeirri hugmynd í þessari grein en tilefnið var nýársávarp forsetans.

Sjötti og fjarlægasti kosturinn er svo hugsanlegt framboð Lýðræðishreyfingarinnar, stjórnmálaafls Ástþórs Magnússonar athafnamanns.

Sjöunda framboðið er svo Lýðfrelsisflokkurinn, flokkur Guðbjörns Guðbjörnssonar og félaga.

Fimm flokkar eiga nú sæti á Alþingi og gætu framboðin því alls orðið tólf í næstu kosningum eða til dæmis einu fleiri en í Hollandi. En í samtali við mbl.is setti Ólafur Þ. Harðarson prófessor fyrirhuguð framboð í samhengi við alþjóðalega þróun í flokkakerfum.

Guðbjörn Guðbjörnsson.

Guðbjörn Guðbjörnsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

BYKO.

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning ...
14:25 Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði. Meira »

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.
14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »

Selur fylgist með skútunum

Myndarlegur selur heldur til við skútubryggjuna á Ísafirði.
14:52 Segja má að nýr hafnarvörður sé tekinn til starfa við skútubryggjuna á Ísafirði en þar hefur myndarlegur selur haldið sig síðustu daga. Selurinn tekur lífinu með ró og kippir sér lítið upp við umferð mannfólksins á höfninni. Meira »

Þremur sagt upp hjá Becromal

Verksmiðja Becromal á Akureyri.
14:23 Þremur starfsmönnum Becromal á Akureyri var sagt upp störfum í gær. Sex starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Meira »

Reglur ræddar í Hafnarfirði

Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...
14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Búslóðaflutningar www.keyrsla.is
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Fyrirtækjaþjónusta sjá á www.keyrsla.is og s...
HP deskjet 3050 J610 series prentari
Til sölu sambyggður prentari, skanni og ljósritun splunku nýr, aldrei verið no...
Sófasett 3 +2
Fallegt og þægilegt rautt sófasett, 3 + 2. Settið er í góðu ásigkomulagi. Fæst ...
Varahlutir í PAJERO o.fl. teg.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
 
Sumarstörf: landvarsla, upplýsingagjöf, afgreiðsla o.fl.
Önnur störf
VAT N A J Ö K U L S ÞJ Ó Ð G A R Ð U R ...
Matreiðslumaður
Hótel- og veitingarekstur
Matreiðslumaður Óskum eftir að ráða mat...
Stýrimaður - vélstjóri
Sjávarútvegur
Starf óskast Stýrimaður â€" Vélstjóri Ós...
Verkefnastjóri
Stjórnunarstörf
Atvinnutækifæri á Austurlandi Hjá Eim...