Enn hækkar bensínverð

Reuters

Skeljungur og Olís hafa hækkað verð á bensínlítranum um þrjár krónur í dag. Er bensínið nú dýrast hjá Skeljungi, kostar 241,40 krónur lítrinn, og 240,60 krónur hjá Olís.

Bensínverð hefur ekki hækkað hjá öðrum bensínstöðvum og engar breytingar hafa orðið á dísilolíuverði.

Bensínlítrinn er ódýrastur hjá Orkunni, 236,30 krónur, og hjá Atlantsolíu þar sem hann kostar 236,40 krónur.

Dísilolían er enn dýrari en hún er ódýrust hjá Orkunni þar sem lítrinn kostar 249,80 krónur. Dísilolían er dýrust hjá Skeljungi, sem á og rekur Orkuna, N1 og Olís en hjá þessum olíufélögum kostar lítrinn af dísil 250,80-250,90 krónur.

Hinn 28. desember sl. kostaði bensínlítrinn 227,60 krónur og dísillítrinn 242,20 krónur hjá Orkunni. Þann dag var lítrinn bæði af bensíni og dísil dýrastur hjá Olís; bensínlítrinn kostaði 231,90 krónur og dísillítrinn 244,50 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert