Ákvörðunin hjá stjórnvöldum

Vaðlaheiðargöng. stækka

Vaðlaheiðargöng. mbl.is

Stjórn Vaðlaheiðarganga segir það sé ákvörðun stjórnvalda hvort af framkvæmdinni verður þar sem stjórnvöld tryggja fjármögnun verkefnisins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn Vaðlaheiðarganga hefur sent frá sér. Í ljósi umræðu undanfarinna daga og framkominna greinargerða um Vaðlaheiðargöng hefur stjórn Vaðlaheiðarganga hf. ákveðið að senda eftirfarandi yfirlýsingu til fjölmiðla. Hlutverk Vaðlaheiðarganga hf. er að vinna að faglegum undirbúningi og framkvæmd verkefnisins, segir í yfirlýsingunni.

Vaðlaheiðargöng hf. var stofnað á Akureyri 9. mars 2011 og er tilgangur félagsins að annast undirbúning og framkvæmd við ný göng undir Vaðlaheiði sem tengja munu Eyjafjörð og Fnjóskadal og stytta þannig þjóðveginn um 16 km.

Eigendur félagsins eru Vegagerðin (51%) og Greið leið ehf. (49%). Félagið var stofnað í kjölfar ákvörðunar stjórnvalda um að halda áfram undirbúningi við gerð ganganna í kjölfar viðræðuslita ríkisins og lífeyrissjóða um fjármögnun samgönguverkefna. Stofnun og tilgangur félagsins byggði á lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir.

„Framhald verkefnisins var háð þeirri forsendu að ríkissjóður myndi fjármagna verkefnið á framkvæmdatíma og að notendagjöld myndu alfarið standa undir fjármögnun verkefnisins til lengri tíma,“ segir í yfirlýsingunni.

Á seinni hluta síðasta árs var útboð á stærstum hluta verklegra framkvæmda og liggur fyrir tilboð frá IAV/Marti í þá verkþætti sem eru 5% undir kostnaðaráætlun varðandi þann þátt. Nú liggja fyrir tilboð eða uppfærðar kostnaðaráætlanir fyrir alla þætti framkvæmdarinnar.

Félagið hefur átt í viðræðum við fjármálaráðuneyti um fyrirkomulag fjármögnunar á framkvæmdatíma. Niðurstöður úr útreikningum varðandi endurgreiðslu lána vegna fjármögnunarinnar hafa verið kynntar ráðuneytinu ásamt því að farið hefur verið ítarlega yfir forsendur.

Verkefnið getur endurgreitt lán að fullu

Niðurstaða útreikninga varðandi endurgreiðslur lána eru þær að verkefnið geti endurgreitt lán að fullu á grundvelli veggjalda út frá þeim forsendum sem kynntar hafa verið.

„Á undanförnum dögum hafa verið kynntar tvær skýrslur um Vaðlaheiðargöng með skömmu millibili. Annars vegar er um að ræða skýrslu sem unnin var af Pálma Kristinssyni, verkfræðingi, og hins vegar IFS Greiningu. Skýrslurnar og niðurstöður þeirra eru um margt ólíkar.

Meginmunurinn er sá að í tilfelli Pálma er að hans sögn einkum byggt á upplýsingum sem veittar voru á opnum fundi í umhverfis- og samgöngunefnd hinn 7. nóvember sl. og reynslu verkfræðingsins af þeim verkefnum sem hann hefur komið að. Í tilfelli IFS Greiningar var unnið með þau gögn varðandi verkefnið sem helstu sérfræðingar landsins hafa unnið og yfirfarið.

Báðar skýrslurnar fjalla um sömu þætti en niðurstöðurnar eru mismunandi. Segja verður að niðurstöður Pálma Kristinssonar eru í meginatriðum frábrugðnar þeim niðurstöðum sem sérfræðingar og IFS Greiningar komast að í sinni vinnu.

Í skýrslum beggja er þó að finna ýmis atriði sem verða skoðuð gaumgæfilega. Það er von félagsins að ákvörðun um framhald og undirbúning Vaðlaheiðarganga verði tekin sem fyrst til að aflétta óvissu gagnvart verktökum og öðrum sem hagsmuni hafa af framkvæmdinni. Mikilvægt er að tafir á ákvörðun skaði verkefnið ekki enn frekar,“ segir í yfirlýsingunni sem stjórnarmenn Vaðlaheiðarganga rita undir, þau Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, formaður, Kristján L. Möller og Pétur Þór Jónasson.

PDF-skrá Yfirlýsing stjórnar Vaðlaheiðarganga í heild
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna reksturs útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
Vatnskassaviftur - tilboð
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...