„Klárt lögbrot“

stækka

Reuters

Landlæknisembættið og Lyfjastofnun segir að það sé mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að PIP-brjóstafyllingar séu fölsuð vara. Ekki sé um að ræða gallaða vöru heldur sé um að ræða klárt lögbrot.

„Sá læknir sem flutti inn og notaði PIP-fyllingarnar gerði það í góðri trú enda varan vottuð af þar til bæru vottunarfyrirtæki og CE-merkt eins og önnur lækningatæki sem heimilt er að nota á Evrópska efnahagssvæðinu,“ segir í samantekt sem landlæknisembættið og Lyfjastofnun hafa sent frá sér um málið.

Þá segir að fölsuðu brjóstafyllingarnar hafi innihaldið iðnaðarsílíkon en ekki sílíkon ætlað til notkunar í lækningatæki.

Um 400 konur hafa fengið hafa PIP-brjóstafyllingar á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að embætti landlæknis safni nú nákvæmum upplýsingum um fjölda kvenna og um þekkt tilvik um rof fyllinganna eða ertingu þeirra. Sömu upplýsinga sé safnað um aðrar brjóstafyllingar.

Undirbúa gagnagrunn

„Embætti landlæknis er að rannsaka umfang brjóstastækkunaraðgerða hér á landi. Aflað er m.a. upplýsinga um fjölda aðgerða, tíðni leka, fjölda brottnáma fyllinga og endurísetninga. Hefur verið óskað eftir þessum upplýsingum frá lýtalæknum og að þær berist ekki síðar en 13. janúar 2012.

Þessar upplýsingar munu varpa ljósi á umfang slíkra aðgerða hér á landi og leggja grunn fyrir upplýsta ákvarðanatöku í framhaldinu.

Lyfjastofnun er að afla upplýsinga um fyrirtæki sem hafa flutt eða flytja inn lækningatæki. Verið er að undirbúa gagnagrunn þar sem fyrirhugað er að skrá alla þá sem flytja inn lækningatæki og hvaða lækningatæki eru flutt inn. Þá er í undirbúningi vefeyðublað sem hægt verður að tilkynna aukaverkanir eða galla vegna lækningatækja til stofnunarinnar beint af vefnum,“ segir í samantektinni.

Starfsmenn landlæknisembættisins og Lyfjastofnunar munu áfram sem hingað til veita almenningi upplýsingar sem byggjast á bestu þekkingu og reynslu varðandi þetta mál.

„Það á rætur í glæpsamlegri starfsemi fransks framleiðanda á brjóstafyllingum og læknar hafa því keypt falsaða vöru í góðri trú. Áfram verður fylgst með málinu í samvinnu við evrópskar samstarfsstofnanir og brugðist við eftir því sem við á,“ segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Perlan

Perlan góður kostur fyrir safn

10:51 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún hefði rætt það óformlega við stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að Perlan yrði nýtt undir Náttúruminjasafn Íslands, verði ekki af sölu hennar. Hún segir Perluna áhugaverðan kost fyrir safn af því tagi. Meira »
Kannabisplöntur.

Með kannabisgræðlinga í bíl

10:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi manns eftir að á fjórða tug kannabisgræðlinga fundust í bíl hans í fyrradag. Við húsleitina fundust um 900 grömm af tilbúnu maríjúana og um 1,4 kg af öðrum kannabisefnum. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Meira »

Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
10:44 Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Meira »

Bað hana um að leyna bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson
10:31 Jón Baldvin bað systurdóttur eiginkonu sinnar um að leyna bréfum sem hann sendi henni næstu áratugina. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um samfellda háttsemi að ræða og því væru hin meintu eða ætluðu brot vegna bréfanna frá 1998, fyrnd. Meira »

Óvíst um fordæmisgildi

KPMG
09:54 Hugsanlegt er að fordæmisgildi nýfallins gengislánadóms sé ekki það mikið. Þetta kom fram í máli Sigurjóns Högnasonar, lögfræðings, á morgunverðarfundi KPMG í morgun, þar sem farið var yfir dóminn með hliðsjón af fordæmisgildi hans. Er þá litið til þess að þar sé efni dómsins um það afmarkað efni. Meira »

Efla þarf rannsóknir á höfunum

Ólafur Ragnar Grímsson.
10:34 Nauðsynlegt er að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í setningarræðu á heimsþingi um höfin í morgun sem haldið er í Singapúr. Hann rakti einnig reynslu Íslendinga af veiðum á grundvelli vísindalegra vísinda og þróun samstarfs á Norðurslóðum. Meira »

Málið var kært, en fellt niður

Forsíða Nýs lífs.
10:09 Samkvæmt umfjöllun nýjasta tölublaðs Nýs lífs reyndi Jón Baldvin Hannibalsson að kyssa systurdóttur eiginkonu sinnar þegar hún var á unglingsaldri, hann fór inn í herbergi hennar að næturlagi og snerti hana „óþarflega mikið“. Hann sendi henni bréf, þar sem hann lýsti kynlífi sínu og samskiptum við vændiskonur. Málið var kært, en látið falla niður. Meira »

Farþegum með Norrænu fækkaði

Norræna.
09:51 Nákvæmlega jafn margir komu með Norrænu til Seyðisfjarðar á síðasta ári og fóru með henni, 14.029, samkvæmt upplýsingum úr svari innanríkisráðherra við fyrispurn þingmanns Framsóknarflokks. Farþegum fækkaði töluvert frá árinu 2010. Meira »

Undir áhrifum á ótryggðum bíl

09:42 Laust eftir miðnætti stöðvaði lögreglan bifreið á Bústaðavegi. Ökumaður var grunaður um fíkniefnaakstur, bifreiðin var ótryggð og ökumaður án ökuskírteinis. Skráningarnúmer bílsins voru fjarlægð og ökumaður færður á næstu lögreglustöð. Meira »

Ný stjórn Röskvu

Iðunn Garðarsdóttir, formaður Röskvu.
09:35 Ný stjórn Röskvu var kjörin á aðalfundi Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, í gær. Iðunn Garðarsdóttir, íslenskunemi var kjörin formaður og Erla Karlsdóttir. sálfræðinemi er varaformaður stjórnar. Meira »

Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?

Ólafur Ingi Tómasson
09:39 „Nú hátt í sex árum eftir að varnarliðið fór af landi brott er Isavia ohf. með góðri aðstoð yfirvalda að takast að útrýma fagstétt sem á sér talsvert langa sögu og nefnist flugvallarslökkvilið", segir Ólafur Ingi Tómasson í grein í Mbl. í dag. Meira »

Innkalla rjómasprautu

Rjómasprautan er af gerðinni Excellent Houseware.
09:30 Aðföng hafa innkallað Excellent Houseware 1 lítra rjómasprautu þar sem í ljós hefur komið að hún getur verið hættuleg neytendum, segir í tilkynningu. Meira »

Geir Jón gefur kost á sér

Geir Jón Þórisson.
08:28 Eftir vandlega umhugsun og mikla hvatningu hefur Geir Jón Þórisson lögreglumaður ákveðið að gefa kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir það einlæga von sína og trú að hann sé rétti maðurinn til að vinna með fólkinu. Meira »

Kærir Snorra til lögreglu

Snorri Óskarsson
07:47 Pétur Maack, sálfræðingur á Akureyri, hefur kært Snorra Óskarsson, kennara í Brekkuskóla á Akureyri, til lögreglu.   Meira »

Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi

Jón Baldvin Hannibalsson.
07:33 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent sextán ára frænku eiginkonu sinnar bréf sem á köflum voru erótísk. Fjallað er um málið í tímaritinu Nýju lífi sem kemur út í dag. Meira »

Má gera athugasemdir í næsta blaði

Þóra Tómasdóttir
08:22 Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, segir að ekkert í umfjöllun blaðsins um samskipti Jóns Baldvins Hannibalssonar og unglingsstúlku krefjist umsagnar hans um málið. Hann geti komið athugasemdum á framfæri í næsta tölublaði tímaritsins. Meira »

Hvessir undir Eyjafjöllum

Í dag hvessir um tíma af austri sunnanlands og spáð er snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum.
07:44 Í dag hvessir um tíma af austri sunnanlands og spáð er snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum, 30-40 m/s frá því um klukkan 6 til klukkan 9 og í Öræfasveit skömmu síðar. Meira »

5,5 laxar í þúsund tonnum makríls

Fáir laxar veiðast með makríl.
07:15 Fiskistofu bárust alls 402 laxasýni á síðustu tveimur árum frá flotvörpuskipum. Þetta samsvaraði 5,5 löxum á hverjar 1.000 lestir af makríl og síld sem skipin veiddu, að því er fram kemur í greinargerð um rannsókn á vegum stofnunarinnar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Góð skrifstofuhæð við Ármúla til leigu.
540 ferm að flatarmáli, má skipta í tvær einingar. 13 herbergi og almennt vinnur...
Hundalopapeysur í miklu úrvali
Er voffa kalt? Mikið úrval af hundalopapeysum. http://www.facebook.com/voffaprjo...
Til sölu NITRO brettaskór
Til sölu lítið notaðir Nitro brettaskór stærð 37,5. Kosta nýir um 18þús. Verð 9 ...
SIKA HITAMÆLAR
Sturlaugur Jónsson & Co. Sími 412 3000. www.sturlaugur.is...
 
Sýslumaðurinn í vestmannaeyjum - byrjun uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl...
Framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Stjórnunarstörf
...
Hugbúnaðarsérfræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
...