AGS: Lagabreyting nauðsynleg

Peningar stækka

Peningar Nærmynd

Í skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem birt er á vef fjármálaráðuneytisins í dag segir auka þurfi ábyrgð og aga við meðferð opinberra fjármuna. Því þurfi að endurskoða lög um fjárreiður ríkisins, bæði hvað varðar gildissvið og form laga, leggja meiri áherslu á undirbúning fjárlagagerðar, breyta verkaskiptingu fjármálaráðuneytis og fagráðuneyta, endurskilgreina samspil löggjafar- og framkvæmdarvalds við mótun fjárlaga, auka eftirlitshlutverk Alþingis, einfalda framsetningu fjárlaga verði, sjá til þess að form reikningshalds taki mið af alþjóðlegum stöðlum og að aukin áhersla verði lögð á ítarlegri áætlanagerð og stefnumörkun til skemmri og lengri tíma.

Lögin taki til almennrar áætlanagerðar

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir að fjármálaráðherra hafi í nokkurn tíma unnið að endurskoðun laga um fjárreiður ríkisins. Gildandi lög nái í meginatriðum yfir undirbúning og framkvæmd fjárlaga, reikningshald ríkisins og að nokkru leyti yfir  áætlanagerð og stefnumörkun, „en talin hefur verið nauðsyn á að víkka gildissvið laga um fjárreiður ríkisins, m.a. þannig að þau taki til almennrar áætlanagerðar í opinberum fjármálum, fjárlagagerðar, framkvæmdar fjárlaga og fjárstjórnar- og eftirlitshlutverks Alþingis. Tryggja þarf að stjórnvöld á hverjum tíma leggi fram heildstæða ríkisfjármálastefnu til lengri tíma, sem taki mið af horfum og markmiðum í efnahagsmálum. Til þess að ná þessu markmiði þarf að endurskoða alla þætti gildandi laga um fjárreiður ríkisins“, segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Kynnir nýtt frumvarp í maí

Fjármálaráðherra stefni að því að kynna ríkisstjórninni frumvarp til laga um opinber fjármál, sem verði lagt fyrir Alþingi í maí á þessu ári. Sé miðað við að ný lög leysi af hólmi gildandi lög um fjárreiður ríkisins frá 1997, en þau hafi verið mikið framfaraskref á sínum tíma. Ný lög eigi ekki síst að tryggja aukna ábyrgð og festu í fjármálum hins opinbera sem og að langtímasjónarmið séu lögð til grundvallar allri fjárlaga- og áætlanagerð.

Í tilkynningunni kemur fram að undirbúningur að endurskoðun fjárreiðulaga hófst vorið 2011  þegar fjármálaráðherra sendi beiðni til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að sjóðurinn  gerði tæknilega úttekt á stöðu mála hér á landi og setti fram hugmyndir um úrbætur.

Þá segir: „Sjóðurinn varð við þessari beiðni og hafa fulltrúar sjóðsins og starfslið fjármálaráðuneytisins unnið að gerð meðfylgjandi skýrslu á frá því í október síðastliðnum. Haldinn var fjöldi  funda með innlendum aðilum s.s. fjárlaganefnd, fulltrúum fagráðuneyta, fjármálastjórum sveitarfélaga, samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál og forstöðumönnum ríkisstofnanna. Aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerir fjármálaráðuneytinu kleift að hafa aðgang að  sem flestum viðurkenndum sjónarmiðum sem æskileg eru þegar ný löggjöf um opinber fjármál er undirbúin.“

     Tengill á skýrslu AGS

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

„Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“

Þór Saari.
10:58 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar skrifar á Facebook að Pawel Bartozsek sem sat í stjórnlagaráði og hefur gagnrýnt meðferð þingsins á tillögum þess, virðist eitthvað misskilja ferlið við breytingar á stjórnarskránni. Þór skorar á Pawel að halda áfram að vinna með stjórnlagaráði. Meira »

Með kannabisgræðlinga í bíl

Kannabisplöntur.
10:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi manns eftir að á fjórða tug kannabisgræðlinga fundust í bíl hans í fyrradag. Við húsleitina fundust um 900 grömm af tilbúnu maríjúana og um 1,4 kg af öðrum kannabisefnum. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Meira »

Allt að 25% verðmunur

11:03 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði 20. febrúar. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika. Meira »

Perlan góður kostur fyrir safn

Perlan
10:51 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún hefði rætt það óformlega við stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að Perlan yrði nýtt undir Náttúruminjasafn Íslands, verði ekki af sölu hennar. Hún segir Perluna áhugaverðan kost fyrir safn af því tagi. Meira »

Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
10:44 Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bresk pund til sölu
Hef til sölu bresk pund, tilboð sendist í breskpund@gmail.com...
COSTA BRAVA PLAYA DE ARO
Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna i sumarleyfið. st...
ELTAK - VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af s...
www.aksturogkennsla.is
Bílatímar, ökuskóli, akstursmat, endurtektarpróf. Sanngjarnt verð og góð þjónust...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Ágúst Val...
Hugbúnaðarsérfræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
...
Deiliskipulag - breyting

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagið La...