Skýrslu stungið undir stól
Hagfræðistofnun HÍ vann skýrslu sumarið 2010 fyrir samgönguráðuneytið þar sem m.a. var lagt mat á hvert veggjaldið þyrfti að vera til að standa undir kostnaði við Vaðlaheiðargöng. Á þeim tíma var Kristján Möller samgönguráðherra.
Skýrslunni virðist hafa verið stungið undir stól þar sem hvorki hún né niðurstöður hennar hafa verið birtar opinberlega, þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir slíkri skýrslu á Alþingi frá stofnuninni.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir, að samkvæmt niðurstöðu skýrslunnar hefðu meðalveggjöld þurft að vera allt að tvöfalt hærri en núverandi forsendur stjórnvalda og Vaðlaheiðarganga hf. gera ráð fyrir. Lagt er mat á fjórar stórframkvæmdir í vegagerð, annars vegar Vaðlaheiðargöng fyrir norðan og hins vegar stofnæðar út frá höfuðborgarsvæðinu.
Í skýrslunni, sem unnin er af Sveini Agnarssyni, forstöðumanni Hagfræðistofnunar, og Jónasi Hlyni Hallgrímssyni verkefnastjóra kemur fram að göngin séu ein áhættusamasta framkvæmdin þar sem vegfarendur hafi val um aðra leið, allt bendi til að Víkurskarð verði áfram opið og leiðin styttist því aðeins um tíu mínútur með Vaðlaheiðargöngum.
Niðurstaða Hagfræðistofnunar er sú að meðalveggjaldið sé á bilinu 1.478 – 2.194 kr. miðað við gefnar forsendur um 4,5 – 6,0% vexti, 25 ára lánstíma og 1.000 – 1.200 bíla á sólarhring í umferð um göngin. Þetta er mun hærra en núverandi meðalveggjald samkvæmt forsendum Vaðlaheiðarganga hf., sem er 1.100 krónur (993 kr. á hvern fólksbíl án afsláttar). Með öðrum orðum var niðurstaðan sú að veggjöld þyrftu að vera allt að tvöfalt hærri en stjórn Vaðlaheiðarganga hf. gerir ráð fyrir í sínum forsendum til þess að göngin stæðu undir sér.
Beðið um aðra skýrslu HÍ
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis fór fram á það nú í nóvember að Hagfræðistofnun yrði fengin til að vinna óháða úttekt á Vaðlaheiðargöngum.
Forsætisnefnd hefur enn ekki afgreitt erindið og bíður það þess að Alþingi komi saman á ný. Guðfríður L. Grétarsdóttir í umhverfis- og samgöngunefnd segist hafa fengið þær skýringar að beðið sé niðurstöðu fjármálaráðuneytis.
Bloggað um fréttina
-
Þjóðarheiður Skýrslum ráðherra stungið undir stól -
Gunnar Heiðarsson Enn gruggast vatnið -
Þorsteinn Siglaugsson Kemur ekki á óvart -
Kristinn Pétursson Stendur Hagfræðistofnun Háskóla Íslands "á gati" - við útreikning á ... -
Sigurður Haraldsson Ólöglega! -
Heimir L Fjeldsted Engum að treysta -
Viggó Jörgensson Kristján Möller segi af sér þingmennsku. -
Þorgeir Pálsson Vinnubrögð Kjördæmapotara -
Sigurður Hrellir 15. gr. -
Haraldur Haraldsson Skýrslu stungið undir stól//Þetta graf alvarlegt mál,og veruð að skíra ... -
Jón Baldur L'Orange Samgöngubætur eiga að vera sameiginlegt verkefni allra landsmanna -
Sturla Snorrason Sundabraut næsta stórverkefni og það strax! -
Axel Jóhann Axelsson Svona gerir maður ekki. -
Óskar Arnórsson Milljarðafyllirí Ríkisstjórnarinnar -
Björn Geir Leifsson Ekkert mál...
Innlent »
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Hagfræðistofnun birti ekki skýrsluna
- Mánudagur, 16. janúar 2012, Innlent Skýrslunnar ekki getið við gerð fjárlaga
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Skýrslan nánast óþekkt
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Innlent Meta ekki Vaðlaheiðargöng
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Skýrsluhöfundar á nefndarfund
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi




































