Umferðin gengur bærilega
Það er eins gott að fara varlega í umferðinni í dag, bæði ökumenn og gangandi vegfarendur þar sem mjög hált er víða. mbl.is/Golli
Umferðin hefur gengið bærilega á höfuðborgarsvæðinu í morgun og ekki tilkynnt um neina árekstra það sem af er morgni til lögreglu. Mikill vatnselgur er á götum á höfuðborgarsvæðinu og biður lögregla ökumenn að fara varlega í umferðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er einnig vatnselgur á Sandskeiði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru byrjaðir að bera sand á götur og göngustíga í borginni en í gær var byrjað að hreinsa frá niðurföllum gatna.
Að sögn lögreglu munar miklu um að ekki snjóaði í nótt líkt og spáð hafði verið. Spáð er hlýju veðri og rigningu um helgina.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hvetur íbúa til að huga að niðurföllum til að forða vatnstjóni vegna hlákunnar. Sérstaklega þurfi að passa að niðurföll í kjöllurum og svölum séu opin.
Slökkviliðið hvetur líka forsvarsmenn fyrirtækja til að fullvissa sig um að ekki sé hætta á vatnstjóni um helgina. Mörg dæmi eru um að vatn leki inn í fyrirtæki meðan engin starfsemi er í þeim yfir helgi.
Reykjavíkurborg hefur hvatt íbúa til að sækja sand og salt á hverfisstöðvar borgarinnar en í einhverjum tilvikum er sandur uppurinn, samkvæmt upplýsingum mbl.is
Hálkublettir eru á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði. Flughált á flestum útvegum á Suðurlandi. Þæfingur er á Lyngdalsheiði og hálka á Mosfellsheiði.
Á Vesturlandi er snjóþekja og hálkublettir norðan megin á Snæfellsnesi. Hálka er á flestum öðrum leiðum á Vesturlandi þá eru hálkublettir í uppsveitum Borgarfjarðar en flughált í Lundarreykjadal og á Hvítárvallavegi.
Á Vestfjörðum er flughált mjög víða. Á Norðurlandi vestra er hálka á flestum leiðum. Flughált á útvegum í Húnavatnssýslum, á Innstrandarvegi og frá Hofsósi í Ketilás.
Á Norðausturlandi er flughált á Öxnadalsheiði. Hálka á flestum öðrum leiðum, þó er snjóþekja í Kelduhverfi til Raufarhafnar um Hófaskarðsleið. Austan- og suðaustanlands er hálka. Flughált er milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Vatnselgur á höfuðborgarsvæðinu
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Hálka og vatnselgur á vegum
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Varað við snörpum vindhviðum
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Víða flughált
- Laugardagur, 31. desember 2011, Innlent Hálka á Sandskeiði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































