Nóg af salti og sandi á hverfastöðvunum

Margir hafa verið að ná sér í sand í dag. stækka

Margir hafa verið að ná sér í sand í dag. mbl.is/Eggert

„Við tökum vörubílahlössin inn, hvert á fætur öðru, og við bætum svona 10-14 tonnum við í hvert sinn,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi hjá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar, aðspurður hversu mikið magn af salti og sandi borgin sendi á hverfastöðvarnar í dag.

Að sögn Jóns hefur verið stöðugur straumur íbúa á hverfastöðvarnar í dag. „Íbúar og starfsmenn hjálpast að við að moka þessu í pokana og koma þessu inn í bílana,“ segir Jón og bætir við að nóg sé til af sterkum og endingargóðum pokum á hverfastöðvunum. Jón tekur jafnframt fram að þjónustan sé íbúum borgarinnar að kostnaðarlausu.

„Fólk tekur þessu mjög fagnandi og það er mjög jákvætt og gott að íbúar skuli taka þetta svona í sínar hendur og við höfum mætt mjög jákvæðu og frábæru viðmóti, við þökkum innilega fyrir það,“ segir Jón í samtali við blaðamann mbl.is.

Hverfastöðvarnar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða eru opnar í dag og á morgun frá kl. 10.30 til 15.00. Símaver Reykjavíkurborgar er opið í dag til kl. 15.00 og tekið verður við ábendingum í síma 411-1111 og þeim komið áfram til vinnslu, segir í tilkynningu frá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar.

Hverfastöðvar borgarinnar eru opnar frá klukkan 10:30 til 15:00 í dag og á morgun. Þar ...

Hverfastöðvar borgarinnar eru opnar frá klukkan 10:30 til 15:00 í dag og á morgun. Þar geta ibúar borgarinnar nálgast salt ... mbl.is/Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna reksturs útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
TOYOTA LAND CRUISER
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...