Skipulagt verði sameiginlegt eftirlit

Matvælastofnun telur að saltmál Ölgerðarinnar gefi tilefni til að skipuleggja sameiginlegt eftirlitsverkefni þar sem stofnunin og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga kanni efnanotkun matvælafyrirtækja og aðra þætti innra eftirlits sem þeim ber að starfrækja til að tryggja örugg matvæli fyrir neytendur.

Kemur þetta fram í tilkynningu sem birt er á vef Matvælastofnunar.

Eftirlitsmenn Matvælastofnunar komust að því við eftirlit í matvælafyrirtæki að þar væri til notkunar salt sem ekki er framleitt sérstaklega til notkunar í matvælaiðnaði. Fyrirtækið hafði keypt þetta salt af dreifingaraðila sem er undir eftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Viðbrögð Matvælastofnunar voru þau að kanna strax um hvaða salt væri að ræða og hvort efnasamsetning þess væri þess eðlis að hætta stafaði af fyrir neytendur. Svo reyndist ekki vera, en að mati stofnunarinnar er ekki ásættanlegt að nota annað salt við matvælaframleiðslu en það sem sérstaklega er framleitt til þeirrar notkunar. Slíkt salt uppfyllir ströngustu skilyrði um hreinleika og alla meðferð. Matvælafyrirtæki eiga að tryggja góða framleiðsluhætti og öryggi vöru fyrir neytendur og notkun á salti, hráefnum, aukefnum og öðrum efnum á því að vera í samræmi við skilyrði matvælalöggjafar. Þetta eru atriði sem taka þarf á í innra eftirliti fyrirtækja og opinberir eftirlitsaðilar þurfa að fylgjast með.

Matvælastofnun segist taka alvarlega gagnrýni á að hafa leyft sölu á takmörkuðu magni af iðnaðarsalti en segir að ákvörðun hennar hafi verið tekin í ljósi þess að ekki væri um varasama vöru að ræða og eingöngu með því skilyrði að matvælafyrirtæki sem keyptu vöruna væru upplýst og gerðu ekki athugasemd. Salt þetta hefur verið í dreifingu í mörg ár án athugasemda af hálfu eftirlitsaðila. Því tilkynnti Matvælastofnun málið til heilbrigðiseftirlits um allt land og hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur síðan fylgt málinu eftir þar sem dreifingaraðilinn hefur starfsleyfi og er undir daglegu eftirliti þess.

„Matvælastofnun lagði einnig til við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að hlutast yrði til um að Ölgerðin, sem flutti inn saltið og dreifði til matvælafyrirtækja, kæmi með almennar upplýsingar um málið þannig að það yrði gert opinbert. Þessu hafnaði fyrirtækið. Í framhaldi af því birti Matvælastofnun frétt á vefsíðu sinni þar sem koma fram nánari upplýsingar um það salt sem hér var í notkun. Stofnunin harmar hins vegar að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur skuli í framhaldi af þessu koma með harða gagnrýni á störf Matvælastofnunar í fjölmiðlum og þá sérstaklega í ljósi þess að engin athugasemd hefur verið gerð við sölu vörunnar til margra ára frá dreifingarfyrirtæki sem er undir þeirra eftirliti, fyrr en Matvælastofnun tók málið upp,“ segir í tilkynningu Mast.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna reksturs útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,hátt og lágt drif,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 35...
Góður hrossaskítur í garðinn
Er á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt frítt eins og þú vilt, eða ég komið með k...
Frábærar snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
Til sölu VW Passat 2,0 árg. 05/2003, station
sjálfskiptur, álfelgur, geislaspilari, ný skoðaður. Sumardekk. Ek. 147 þús. Ve...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....