Segir engan eðlismun á saltinu

Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar. stækka

Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar. mbl.is/Ómar

Margir hafa velt því fyrir sér hvort ekki hefði átt að vera augljóst að saltið sem Ölgerðin seldi til matvælaframleiðslu var iðnaðarsalt. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir misskilninginn helst liggja í því að þau telji matvælaiðnaðinn vera iðnað. Það sé ekki talað um að saltið sé ekki vottað til matvælaframleiðslu.

„Þegar við fórum að rýna í þetta sáum við að vorum með annað vörulýsingarblað frá framleiðandanum, fyrir um þremur árum, sem sagði að þetta væri HACCP-vottað,“ segir Andri Þór og þetta sé því ekki alveg eins klaufalegt og talið var í byrjun. „Vegna þess að við höfðum þá ástæðu til að telja að þessar lýsingar hefðu ekkert verið að breytast.“

Þegar spurt er hvort það hljóti ekki að vera einhver munur á iðnaðarsalti og salti til matvælaframleiðslu, því annars sé ástæðulaust að gera slíkan greinarmun, segir Andri Þór: „Það er enginn greinarmunur á innihaldslýsingu. Það er enginn eðlismunur á þessu salti.“

Þegar spurt er frekar um hvort það sé ekki einhver munur á þeim efnum sem eru í saltinu segir Andri Þór svo ekki vera. „Það er hægt að finna einhver minniháttar frávik sem falla innan allra marka sem gerð eru til matvælaframleiðslu og neyslu. Það er algjörlega sambærilegt. Salt er bara salt í þessu samhengi en það er bara verið að tala um vottun á ferlum varðandi geymslu og slíkt.“

Andri Þór ítrekar að saltið sé algjörlega hættulaust með öllu.

Í þessu samhengi er eðlilegt að velta fyrir sér verðmun á iðnaðarsalti og salti vottuðu til matvælaframleiðslu og aðspurður segir Andri að þar muni um 20% á innkaupsverði og sá verðmunur skili sér að sjálfsögðu út í verðlagið.

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að Ölgerðin hefði birt vörulýsingar á saltinu.


Iðnaðarsalt frá Akso Nobel

Iðnaðarsalt frá Akso Nobel mbl.is/Af vef Ölgerðarinnar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
Hrossaskítur á sumarhúsalóðina
Nóg til, taktu eins og þú vilt. Afar gott að setja nýjan hrossaskít undir ungar ...
NUDD EF ÞÚ ERT MEÐ VÖÐVABÓLGU.
SLEN OG SVEFNLEYSI STAFAR OFT AF VERKJUM Í SKROKKNUM. NUDD GETUR BÆTT ÁSTANDIÐ. ...
Trek Jet 20" 5 - 9 ára
Til sölu Trek barnahjól svart/blátt, lítur vel út, nýlegt afturdekk, alltaf geym...
 
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...