Skýrslunnar ekki getið við gerð fjárlaga
„Mér finnst þetta vera mjög alvarlegt því það var verið að ræða þetta mál í sambandi við fjárlögin í fyrra og þar kom aldrei nokkurs staðar fram að samgönguráðuneytið hefði látið gera þessa skýrslu,“ sagði Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun þar sem rætt var um Vaðlaheiðargöng og skýrslur sem unnar hafa verið um þau.
Þór vísaði þarna til skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann sumarið 2010 fyrir samgönguráðuneytið (í dag hluti innanríkisráðuneytisins) þar sem meðal annars var fjallað um Vaðlaheiðargöng og hvað veggjald um þau þyrfti að vera hátt til þess að framkvæmdin stæði undir sér í ljósi mögulegra lánveitinga til þeirra.
Sú skýrsla var hins vegar aldrei gerð opinber, hvorki af Hagfræðistofnun né samgönguráðuneytinu. Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, sagði í samtali við mbl.is fyrir helgi að það væri ekki hlutverk stofnunarinnar að gera skýrslur opinberar sem hún ynni fyrir einstaka verkkaupa. Í þessu tilfelli samgönguráðuneytið.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardaginn virðast fáir þingmenn hafa vitað af skýrslu Hagfræðistofnunar frá 2010. Af þeim þingmönnum sem blaðið hafði samband við könnuðust aðeins tveir við hana. Kristján L. Möller, sem var samgönguráðherra þegar skýrslan var unnin, og Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem sagði að sig ræki minni til að vitað hefði verið um hana í tengslum við viðræður við lífeyrissjóðina um aðkomu þeirra að fjármögnun Vaðlaheiðarganga.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Skýrslan nánast óþekkt
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Hagfræðistofnun birti ekki skýrsluna
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Skýrslu stungið undir stól
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Skýrsluhöfundar á nefndarfund
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Var ekki kunnugt um skýrsluna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































