Aðilar hafa rætt saman
„Nú hefst bara vinna við að mynda nýjan meirihluta,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs, um fall meirihlutans í bæjarstjórn. „Aðilar hafa auðvitað verið að ræða saman í þeirri stöðu sem upp er komin,“ segir hann aðspurður.
Haldinn var aukafundur í bæjarstjórninni síðdegis í dag að ósk sjálfstæðismanna, sem fóru fram á skýringar á uppsögn Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra. „Við fengum óljós munnleg svör en erum að bíða eftir skriflegum svörum næsta fimmtudag,“ segir Ármann.
„Það er ljóst að meirihlutinn stóð ekki heilshugar á bak við uppsögn bæjarstjórans eins og mann hafði grunað,“ segir hann og bætir við að hann hafi einnig grunað að meirihlutinn myndi springa. ,,Það var ekki hægt að gera grein fyrir því af hverju henni var sagt upp og hvers vegna var farið í þessa vegferð. Þetta var allt málum blandið,“ segir Ármann.
Meirihlutinn er nú fallinn eftir að Hjálmar Hjálmarsson fulltrúi Næst besta flokksins, hefur slitið samstarfinu. „Nú hefst bara vinna við að mynda nýjan meirihluta,“ segir Ármann. Spurður hvort viðræður hafi þegar farið fram segir hann að aðilar hafi rætt saman í þeirri stöðu sem upp er komin.
Ellefu fulltrúar sitja í bæjarstjórn Kópavogs. Samfylking, Vinstrihreyfingin-grænt framboð, Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa mynduðu meirihluta sex bæjarfulltrúa eftir seinustu kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn er með fjóra fulltrúa í bæjarstjórn, Samfylkingin þrjá, Framsóknarflokkurinn einn, VG einn, Næst besti flokkurinn einn og Listi Kópavogsbúa einn fulltrúa.
Bloggað um fréttina
-
Valgeir Jens Guðmundsson Engin lopapeysa??? -
Sigurður Þorsteinsson Nýju föt keisaraynjunnar
Innlent »
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. janúar 2012, Innlent Óformlegar viðræður
- Mánudagur, 23. janúar 2012, Innlent Þreifingar halda áfram
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Formlegar viðræður hafnar
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent Meirihluti að fæðast í Kópavogi
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Innlent Krefjast svara
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina





































