Leifsstöð næstbesta flugstöð í heimi
Úr Leifsstöð.
Vefurinn frommers.com hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Flugstöð Leifs Eiríkssonar sé næstbesta flugstöð í heimi á eftir Hajj-flugstöðinni á flugvelli Abdul Aziz konungs í Jedda í Sádi-Arabíu. Sú flugstöð er aðeins opin meðan á Hajj, trúarhátíð múslima, stendur þegar milljónir múslima fara í pílagrímsferð til Mekka.
Bandaríska blaðið USA Today segir frá þessu í dag en frommers.com tók saman lista yfir bestu og verstu flugstöðvar heims fyrir blaðið.
Um Leifsstöð segir frommers.com, að litli notalegi alþjóðlegi flugvöllurinn á Íslandi líti út eins og hann hafi komið í flötum umbúðum frá Ikea. „Alls staðar er ljós viður og hraungrýti og stórir gluggar þar sem hægt er að horfa á mikilfenglegt landslag Íslands.“
Hinar flugstöðvarnar átta, sem þykja bestar, eru Terminal 5 á John F. Kennedy-flugvelli í New York og flugstöðvarnar í Seúl í Suður-Kóreu, Wellington á Nýja-Sjálandi, Madrid á Spáni, Marrakech í Marokkó, Montevideo í Úrúgvæ og Bilbao á Spáni.
„Ef borg leggur rækt við flugstöðina sína segir það gestinum, að það sé hugsað vel um hann,“ hefur USA Today eftir Jason Clampet, ritstjóra frommers.com.
Versta flugstöðin að mati vefjarins er á John F. Kennedy-flugvelli, Terminal 3, sem Delta notar. Á þeim lista eru einnig Terminal B á Newark-flugvelli og flugstöð US Airways á LaGuardia-flugvelli í New York, Midway-flugvöllur í Chicago og flugstöðvar í Manila á Filippseyjum, Moskvu í Rússlandi, París í Frakklandi, Nairobi í Kenýa og Amman í Jórdaníu.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Fer eftir því hvaða forsendur eru gefnar. -
Viggó Jörgensson Aftur í sjálfsblekkingunni.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. mars 2012, Innlent Stöðvuð með fölsuð vegabréf
- Mánudagur, 12. mars 2012, Innlent Póstbíl stolið við Leifsstöð
- Þriðjudagur, 8. maí 2012, Innlent Leifsstöð stækkuð um tvö flughlið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































