Mikil eldhætta

Hestfjörður. stækka

Hestfjörður. www.mats.is

„Við verðum þarna þar til bíllinn er kominn á rétt ról má segja; allavega búið að losa hann,“ segir Þorbjörn Jóhann Sveinsson, slökkviliðsstjóri á Ísafirði, í samtali við mbl.is, spurður út í viðbúnað í norðanverðum Hestfirði í Ísafjarðardjúpi í kvöld.

Þar fór tankbíll frá Skeljungi út af veginum í hálku á tíunda tímanum í kvöld. Bifreiðin hafnaði í skurði fyrir ofan veg. Hún liggur ofan á tanknum, skagar aðeins út á veg og stendur beint upp í loft. Um 39.000 lítrar af bensíni eru í tanknum. „Það er ekki mikill leki en eitthvað dreitlar,“ segir Þorbjörn. Aðspurður segir hann að ekki sé að sjá að það hafi komið gat á tankinn. Menn finna hins vegar sterka bensínlykt á svæðinu.

Viðbúnaðurinn er mikill vegna sprengihættu og menn óttast umhverfisslys. Allt tiltækt lið var kallað út í kvöld, m.a. starfsmenn frá Vegagerðinni og Umhverfisstofnun.

„Það er náttúrlega bullandi eldhætta. Við höfum ekki náð að losa geymasambönd eða neitt. Það er efst í bílnum. Þetta er svo ótryggt að ég þori ekki að senda mannskap upp í hann fyrr en við erum búin að tryggja það. Á meðan er eldhætta,“ segir Þorbjörn.

Vegurinn lokaður

Hann bendir hins vegar á að það sé langt í næstu byggð og því stafi almenningi ekki ógn af lekanum. Þá er lögreglan búin að loka veginum og verður hann lokaður í nótt á meðan menn athafna sig á vettvangi. Verið er að tryggja svæði sem nær um 160 metra í hvora átt frá slysstað.

Þorbjörn segir að það sé hætt við mengunarslysi „en það verður þá bara frekar að vera það en að fórna mannskap. Allavega vil ég tryggja það þannig að það verði ekki slys á mannskap,“ segir Þorbjörn

Aðstæður á vettvangi eru erfiðar. Þar er fljúgandi hálka og rigning, og þá er farið að hvessa. Þorbjörn segir að vegurinn að slysstað sé seinfarinn.

Sprauta froðu á bensínið

„Við erum á vettvangi og erum að reyna að útvega okkur verkfæri. Við erum að keyra inn froðubifreið þarna inn eftir; ætlum að setja yfir þetta froðu,“ segir Þorbjörn. Þá stendur til að senda tankbíl á svæðið með meira vatn. Þá er von á kranabíl og bíl frá Vegagerðinni með sand svo menn geti fótað sig í hálkunni. „Það er glerhált þarna,“ segir Þorbjörn.

Þá hefur slökkviliðið verið í sambandi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vegna málsins. Slökkviliðið á Ísafirði hefur ekki kallað eftir aðstoð að sunnan en það reynir að ná utan um málið með þeim búnaði sem það hefur til umráða.

Þá er von á þremur tankbílum frá Ísafirði, bæði frá Skeljungi og Olíudreifingu, sem verða notaðir til að dæla olíu úr bílnum sem hafnaði utan vegar. Miðað við aðstæður er ekki ljóst hvernig eða hvenær það mun eiga sér stað.

Skeljungur hefur opnað mengunarstjórnstöð vegna málsins en verið er að meta aðstæður.

Ökumaður tankbílsins hlaut ekki alvarleg meiðsl.

Mikill viðbúnaður í Hestfirði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...