Nýtt framboð kynnt í febrúar

Lilja var einn nýrra þingmanna á Alþingi í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. stækka

Lilja var einn nýrra þingmanna á Alþingi í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. Ómar Óskarsson

„Ég ... vinn núna að því að stofna nýjan flokk. Við munum kynna grundvallarstefnu flokksins í febrúar og gera fólki kleift að ganga til liðs við hann,“ segir Lilja Mósesdóttir þingmaður og býður Ögmund Jónasson innanríkisráðherra og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur velkomin til samstarfs.

Spurð út í hörð viðbrögð Árna Þórs Sigurðssonar, þingflokksformanns VG, við grein Ögmundar í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag, túlkar Lilja hræringarnar svo:

„Forysta VG er núna farin að beina óvild sinni að Guðfríðu Lilju og Ögmundi með það að markmiði að koma þeim út úr flokknum. Brotthvarf okkar Atla og Ásmundar Einars virðist ekki hafa orðið til þess að lægja öldurnar innan þingflokksins. Reynsla mín af forystu VG er að hún þolir ekki sjálfstæða þingmenn, þar sem þeir ógna foringjaræðinu í flokknum.“

„Munu hamast“ á Ögmundi og Guðfríði Lilju

- Hvað mun gerast hjá VG ef tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að vísa beri frá ákærunni á hendur Geir H. Haarde verður samþykkt?

„Forysta VG mun hamast enn meira á þessum tveimur þingmönnum og ekki linna látum fyrr en þeir hafa yfirgefið flokkinn. Það bendir allt til þess að forysta VG óski einskis heitar en að Guðfríður Lilja og Ögmundur yfirgefi flokkinn, þannig að VG komist í rólegu deildina.“

- Er „órólega deildin“, sem svo var kölluð, að fara að stofna nýjan flokk?

„Ögmundur og Guðfríður Lilja eru enn í VG. Ég er hins vegar búin að yfirgefa VG og vinn núna að því að stofna nýjan flokk. Við munum kynna grundvallarstefnu flokksins  í febrúar og gera fólki kleift að ganga til liðs við hann.“

- Viltu þau Ögmund og Guðfríði Lilju innanborðs?

„Allir sem eru sammála stefnu flokksins í grundvallaratriðum eru velkomnir í flokkinn, þ.m.t. Ögmundur og Guðfríður Lilja,“ segir Lilja Mósesdóttir þingmaður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Verksmiðja Becromal á Akureyri.

Þremur sagt upp hjá Becromal

14:23 Þremur starfsmönnum Becromal á Akureyri var sagt upp störfum í gær. Sex starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Meira »
Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »

Reglur ræddar í Hafnarfirði

Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...
14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

WOW air notar Airbus-vélar

Önnur véla WOW er merkt Wow Force One.
14:01 WOW air undirbýr sig nú fyrir komandi sumar en félagið mun hefja áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í júní. Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320 168 sæta flugvélum. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express. Önnur vélin er merkt WOW Force One með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Meira »

Draga hækkun til baka

Frá Patreksfirði.
13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Rán framið á Akureyri

Spilakassar.
14:02 Rán var framið á spilastað Gullnámunnar við Geislagötu á Akureyri um hádegisbil í dag. Þetta staðfesti lögreglan á Akureyri en varðist að öðru leyti allra frétta af málinu. Meira »

Skoði betur kaflann um forsetann

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrverandi formaður stjórnlagaráðs.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ítalskir sparisk f.stráka st.38.v.4.500
Alveg ónotaðir geggjaðir Ítalskir spariskór f.stráka st. 38. Verð 4.500 kr stgr....
M.BENZ C 240
M.Benz C 240 4matic. Árgerð 2003 Ekinn 175 þ. km, bensín...
Þvottavél til sölu.
Góð Ariston þvottavél til sölu á 30 þús. Uppl. í síma 772-2049...
Ikea rúm 140x200 til sölu
Ikea Aspelund rúmgafl 140x200. 2x Sultan Luröy rimlabotn 70x200 og Aspelund nát...
 
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012022219 III ...
I.o.o.f. ob.1,petrus
Félagsstarf
I.O.O.F. Ob.1,Petrus [1922218[ M.T.W - F...
Bækur til sölu

Bækur til sölu Jarðatal á Íslandi 1847 ...