Dregur úr langtímaatvinnuleysi
Dregið hefur úr langtímaatvinnuleysi samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Á fjórða ársfjórðungi 2011 höfðu um 2.600 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 1,5% alls vinnuaflsins. Á sama tímabili 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.200 manns eða 1,8% vinnuaflsins.
Lægsta hlutfall fólks á vinnumarkaði í 20 ár
Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru 175.700 á vinnumarkaði sem jafngildir 78,4% atvinnuþátttöku sem er lægsta hlutfall sem Hagstofan hefur mælt frá upphafi vinnumarkaðsrannsókna árið 1991. Frá fjórða ársfjórðungi 2008 hefur vinnuaflið minnkað um 6.700 manns, en það taldi þá 182.400 manns. Frá fjórða ársfjórðungi 2010 hefur fólki á vinnumarkaði fækkað um 3.100. Atvinnuþátttaka karla á fjórða ársfjórðungi 2011 var 82,7% en kvenna 74%.
Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda.
Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 10.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,4% hjá körlum og 5,6% hjá konum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2011 var 165.100 manns eða 73,7% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 77,4% og starfandi kvenna 69,8%.
Hvoru tveggja, atvinnulausum og starfandi, fækkaði frá fjórða ársfjórðungi 2010 til fjórða ársfjórðungs 2011. Atvinnulausum fækkaði um 2.600 og starfandi um 500. Starfandi körlum fjölgaði um 1.400 en á sama tíma fækkaði starfandi konum um 1.900.
Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2011 höfðu að jafnaði 2.900 manns verið atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 1,6% vinnuaflsins. Er það sama hlutfall og svipaður fjöldi og á fjórða ársfjórðungi 2010.
Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða.
Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu, segir í frétt Hagstofu Íslands.





































