Eining-Iðja vill ekki segja upp samningum

Björn Snæbjörnsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar Iðju, stækka

Björn Snæbjörnsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar Iðju, mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Á fjölmennum fundi trúnaðarráðs og samninganefndar Einingar-Iðju í gær var samþykkt að segja ekki upp kjarasamningum en jafnframt var ríkisstjórnin harðlega gagnrýnd fyrir að efna ekki gefin loforð í tengslum við gerð kjarasamninga í maí í fyrra.

Leynileg kosning fór fram á fundinum og mikill meirihluti fundarmanna, eða rúmlega 83%, vildu ekki segja upp samningunum, segir í frétt frá félaginu.

Afgerandi niðurstaða

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segist því fara með afgerandi niðurstöðu inn á formannafund SGS í dag og formannafund ASÍ á fimmtudaginn.

„Þetta var alveg afgerandi niðurstaða og ég mun koma henni til skila á þeim fundum sem framundan eru. Þó þetta hafi verið niðurstaðan þá var ríkisstjórnin harðlega gagnrýnd fyrir að efna ekki gefin loforð. Það er krafa Einingar-Iðju að ríkisstjórnin efni alla þætti yfirlýsingar sinnar. Samtök atvinnulífsins hafa staðið við gerða samninga en það gengur ekki að ríkisstjórnin standi ekki við fyrirheit sín. Við verðum að tryggja stöðugleika í landinu, en það verða allir að koma að því verki. Það virðist því miður sem stéttarfélögin í landinu séu tilbúin til að leggja mun meira á sig til að tryggja það en ríkisstjórn Íslands,“ segir í tilkynningu.

Á fundinum var verið að fjalla um stöðu samninga við endurskoðun nú í janúar, en ákvörðun um hvort segja eigi þeim upp eður ei þarf að liggja fyrir undir lok vikunnar. Ályktun vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar á þeim loforðum sem hún gaf út í tengslum við gerð síðustu kjarasamning var samþykkt á fundinum.

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, fór yfir stöðu kjarasamninga fyrir endurskoðun nú í janúar. Hann sagði frá forsendunefnd sem hefur tvíþætt hlutverk. Annars vegar að fylgjast með gangi mála og reyna að hafa áhrif og hinsvegar að meta hvort forsendur standi. Hjá honum kom m.a. fram að meginforsenda samninganna hefur staðist, þ.e. kaupmáttur hefur aukist. Há verðbólga er hins vegar áhyggjuefni eins og lítil styrking krónunnar, reyndar gera spár ráð fyrir að verðbólga lækki hratt með vorinu.

Hann sagði að sérstakt áhyggjuefni væri það sem snýr að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem var gerð í tengslum við kjarasamningana. Þrátt fyrir að margt hefði verið framkvæmt í samræmi við fyrirheit hallar verulega á stjórnvöld og ber þar hæst svik um að hækkun bóta almannatrygginga og atvinnuleysisbóta verði í takt við launahækkanir 1. febrúar nk. Þá nefndi hann skattlagningu á lífeyrissjóði á almennum markaði sem þýðir að óbreyttu skerðingu lífeyris félagsmanna ASÍ og hægt gengur að taka á vanda opinberu sjóðanna, segir ennfremur í tilkynningu.

Getuleysi ríkisstjórnarinnar rætt

„Miklar umræður urðu á fundinum og var minnst á að getuleysi ríkisstjórnarinnar við að efna þætti yfirlýsingar sinnar í tengslum við síðustu kjarasamninga væri með öllu ólíðandi. Fundarmenn töluðu um að nú dynji á launafólki skattahækkanir og ýmsar gjaldskrárhækkanir og að ekki mætti gleyma svikum stjórnvalda á hækkun bóta almannatrygginga. Minnst var á að auknar fjárfestingar í atvinnulífinu og opinberar framkvæmdir hafi ekki aukist eins og stefnt var að og voru fundarmenn á því að sorglegt væri að fylgjast með deilum um Vaðlaheiðargöng. Framkvæmdir við þau ættu að vera hafnar fyrir löngu."

Ályktun vegna vanefnda ríkisstjórnar

„Trúnaðarráð Einingar-Iðju og samninganefnd félagsins lýsa yfir miklum vonbrigðum með vanefndir ríkisstjórnarinnar á loforðum sem gefin voru í tengslum við undirritun kjarasamninga og skora á hana að efna alla þætti þeirra. Aðilar vinnumarkaðarins hafa staðið við öll ákvæði samninga en það vantar mikið upp á að ríkisstjórnin standi við loforð sín. Við slíkan trúnaðarbrest verður ekki unað. Það er ólíðandi með öllu og ámælisvert að ríkisstjórnin skuli enn ekki hafa staðið við fyrirheit sín og að stéttarfélög landsins geti ekki treyst yfirlýsingum hennar.“

Ályktun um Vaðlaheiðargöng

„Trúnaðarráð Einingar-Iðju og samninganefnd félagsins skora á stjórnvöld að hefja strax framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng. Ekki má nota verkefnið sem afsökun fyrir því að aðrar framkvæmdir á vegum ríkisins dragist á langinn, þar sem um einkaframkvæmd er að ræða. Það er sláandi að heyra úrtöluraddir ýmissa ráðamanna sem finna verkinu allt til foráttu. Vaðlaheiðargöng eru bæði þjóðhagslega hagkvæm og koma til með að styrkja stórt svæði hvað varðar atvinnuuppbyggingu, öryggi og samgöngur.
Vinna við Vaðlaheiðargöng mun skapa nauðsynleg atvinnutækifæri og miðað við aðstæður í dag þá þarf að setja framkvæmdir við þau í gang strax.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
LED perur 80% orkusparnaður !
LED er þróun sem lækkar orkunotkun allt að 80%, perurnar eru umhverfisvænar. Ve...
Yorkshire terrier bræður í leit að heimili
Yorkshire terrier rakkar leita að framtíðarheimili. Yndislegur heimilishundur, f...
Nettir dökkbrúnir leðursófar til sölu
Tveir dökkbrúnir sex mánaða gamlir sófar úr IKEA til sölu vegna breytinga. Fást ...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...