„Ég treysti þjóðinni“

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir stækka

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir Ernir Eyjólfsson

„Varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu og ESB, þá er munurinn á mér og Vigdísi Hauksdóttur að ég treysti þjóðinni til að meta það hvort hún vilji þá samninga sem við komum með þegar samningsferlinu er lokið.“ Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi um aðildarviðræðurnar að ESB.

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti Jóhönnu á tillögu sína um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið verði áfram aðildarviðræðunum við Evrópusambandið. Hún vísaði í skoðanakönnun sem fram kemur að 63% svarenda séu á móti aðild að ESB og spurði hvort ekki ætti að fara að vilja þjóðarinnar.

Jóhanna sagði þjóðina eiga að taka afstöðu til þess hvort hún telji hagsmunum Íslands betur borgið innan Evrópusambandsins eða utan á grundvelli þeirra samninga sem ríkisstjórnin komi með. „Treystu nú þjóðinni til að meta það hvort hún telji það rétt eða rangt að Ísland gangi í ESB,“ sagði Jóhanna og benti á að fjöldi fólks væti að leggja sig fram við að ná sem bestum samningum fyrir þjóðina.

Vigdís svaraði því til að hún treysti þjóðinni. Það væri hins vegar þjóðin, og stjórnarandstaðan, sem treysti ekki ríkisstjórninni til að „víla og díla“ með málið í Brussel.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »
Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...

Reglur ræddar í Hafnarfirði

14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

Rán framið á Akureyri

Spilakassar.
14:02 Rán var framið á spilastað Gullnámunnar við Geislagötu á Akureyri um hádegisbil í dag. Þetta staðfesti lögreglan á Akureyri en varðist að öðru leyti allra frétta af málinu. Meira »

Skoði betur kaflann um forsetann

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

WOW air notar Airbus-vélar

Önnur véla WOW er merkt Wow Force One.
14:01 WOW air undirbýr sig nú fyrir komandi sumar en félagið mun hefja áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í júní. Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320 168 sæta flugvélum. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express. Önnur vélin er merkt WOW Force One með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Meira »

Draga hækkun til baka

Frá Patreksfirði.
13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrverandi formaður stjórnlagaráðs.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FRYSTIKLEFI
Til sölu 15 rúmmetra frystiklefi, tilbúinn til afhendingar strax. Uppl. sími 892...
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
Leksvik barnarimlarúm til sölu
Mjög vel með farið rimlarúm ásamt dýnu sem er eins og ný. Verð kr.15.000.- Ásla...
VOLVO S40
Er með til sölu VOLVO S40, keyrður 85.000 km, árgerð 2004, bensín, 2435 cc sla...
 
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
F0212203-001 einangrað pípuefni

ÚTBOÐ Einangrað pípuefni DN500 Útbo...
Framleiðslustarfsmenn - raf- og véliðnaðarmenn og sumarstörf
Iðnaðarmenn
Atvinnutækifæri á Austurlandi Matthía...
Verkefnastjóri
Stjórnunarstörf
Atvinnutækifæri á Austurlandi Hjá Eim...