„Grenjandi óánægja“

Yfirgnæfandi meirihluti aðildarfélaga ASÍ vill að kjarasamningarnir haldi gildi sínu en það er „grenjandi óánægja“ vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, en formannafundi vegna endurskoðunar kjarasamninga er nýlokið. Samninganefnd ASÍ mun taka ákvörðun á morgun um gildi kjarasamninganna.

Í frétt á vefsíðu ASÍ af formannafundinum segir að gríðarleg gremja hafi komið fram í garð ríkisstjórnarinnar og sagði Gylfi í upphafi fundar að það væri makalaus staða að það væri ríkisstjórnin sem skyldi vera sá aðili sem ógnaði þeirri sátt sem náðst hefði á vinnumarkaði. Á fundinum kom hver formaðurinn á fætur öðrum í ræðustól og lýsti óánægju sinni með framgöngu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Fram kom að ljóst væri að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við mörg af þeim ákvæðum sem hún skrifaði undir í tengslum við kjarasamningana 5. maí og af þeim svikum stafaði reiði verkalýðshreyfingarinnar.

Forsendur gagnvart atvinnurekendum ganga eftir

Landssambönd og félög hafa að undanförnu fengið umboð frá félögunum áður en ákvörðun er tekin varðandi endurskoðun kjarasamninganna. Gylfi segir í samtali við mbl.is að markmið þessa fundar hafi verið að fá upplýsingar frá félögunum og bera saman bækur um næstu skref.

„Nokkur félög vilja segja samningunum upp en yfirgnæfandi meirihluti okkar aðildarfélaga vill halda þessu áfram. Forsendur okkar gagnvart atvinnurekendum eru að ganga eftir og ekki tilefni viðbragða gagnvart þeim, en að sama skapi er alveg grenjandi óánægja með aðkomu ríkisstjórnarinnar og vanefndir hennar,“ segir Gylfi.

Á formannafundinum í dag rifjaði hann upp að mikil umræða fór fram á vettvangi ASÍ haustið 2010 og samtökin beittu sér fyrir því að reynt yrði að ná breiðri sátt á milli vinnumarkaðarins og stjórnmálanna um leiðir út úr kreppunni. „Ég held að niðurstaða samninganna á síðasta ári hafi undirstrikað að það varð ofan á,“ segir Gylfi.

„Allur vinnumarkaðurinn fór þessa sömu leið, þannig að kjarasamningurinn sem ASÍ og SA gerðu í byrjun maí var grundvöllur að mjög breiðri sátt um þróun kjaramála. Það er þess vegna ömurlegt til þess að vita að stjórnvöld skuli ógna þessari sátt með framgönguleysi sínu. Maður hefði haldið að það væri happ hverrar ríkisstjórnar að eiga jákvætt samstarf við samningsaðila til að verja slíka sátt en ekki vera sá aðili sem græfi undan henni,“ segir Gylfi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »
Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BENZ JEPPI ML 430 skoða skipti
Til sölu MERCEDES BENZ ML 430 árg.'99 ek.117 þúsund mílur Sjálfskiptur, leður, l...
Hvammur sumarhús á Snæfellsnesi
Stórt og velbúið sumar/heilsárshús á sunnanverðu Snæfellsnesi vikuleiga. Gistin...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut
Til sölu upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut. rennibraut 3 metra með 10 krókum...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....