Norðurál skaðabótaskylt
Hæstiréttur viðurkenndi í dag skaðabótaskyldu Norðuráls á Grundatanga á líkamstjóni starfsmanns sem kom samstarfskonu sinni til bjargar í september 2005. Þar með sneri rétturinn við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Maðurinn gerði þá kröfu að viðurkennd yrði með dómi skaðabótaskylda og vinnuveitandaábyrgð Norðuráls á þeim bakmeiðslum sem hann varð fyrir 21. september 2005 við vinnu í kerfóðrunardeild Norðuráls.
Þá var samstarfskona hans að setja bakskautsklemmu, sem hífð var með krana, niður á bakskaut þar sem átti að geyma hana meðan kraninn var notaður í annað. Klemman átti að setjast í þar til gerða rauf á báðum endum skautsins, en þar sem hún féll ekki réttilega í raufina öðrum megin féll hún yfir fætur konunnar. Klemman vó 620 kg.
Maðurinn og annar starfsmaður hlupu til og saman gátu lyftu þeir öðrum enda bakskautsklemmunnar ofan af fótum konunnar þannig að hún losnaði. Maðurinn kvaðst við þetta hafa tognað í baki og hlotið varanlegt mein af.
Héraðsdómur sagði í niðurstöðu sinni að ekki yrði fallist á að það hefði verið í eðlilegum tengslum við starf mannsins hjá Norðuráli að aðstoða konuna. Ósannað væri að maðurinn hefði brugðist við samkvæmt fyrirmælum verkstjóra eða hópstjóra og lægi því ekki annað fyrir en að hann hefði sjálfur tekið þá ákvörðun að bregðast við og hjálpa samstarfskonu sinni.
Þá hefði hann ekki sýnt fram á að Norðurál sem vinnuveitandi bæri ábyrgð á tjóninu og ekki heldur sýnt fram á að hann hefði þurft að bregðast við vegna þess að hagsmunir Norðuráls væru í húfi. Var Norðurál því sýknað af bótakröfunni.
Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Norðurál bæri vinnuveitandaábyrgð á mistökum sem orðið hefðu hjá stjórnanda kranans við verkið. Teldist tjón starfsmannsins til bótaskyldra afleiðinga af þeirri háttsemi meðal annars þar sem gera mætti ráð fyrir því að starfsmenn kæmu samstarfsmönnum, sem yrðu fyrir slysum, til hjálpar eftir föngum, ekki síst til að aflétta hættu sem að viðkomandi steðjaði. Viðbrögð starfsmannsins og starfsfélaga hans hefðu verið til þess fallin að draga úr tjóni samstarfskonu þeirra og hefðu þau að því leyti verið í þágu hagsmuna Norðuráls sem vinnuveitanda hennar.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. janúar 2012, Innlent Málarekstur í höndum Sjóvár
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Innlent Fær ekki bætur fyrir að hjálpa vinnufélaga
- Fimmtudagur, 19. janúar 2012, Innlent Ólýsanleg tilfinning
- Miðvikudagur, 21. desember 2011, Innlent HS Orka stefnir OR fyrir gerðardóm
- Þriðjudagur, 11. október 2011, Innlent Ekki mengunarslys
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































