Fréttaskýring: Tvöfaldur taugatitringur
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra í þingsal í gær. mbl.is/Kristinn
Ljóst er að mikill og vaxandi taugatitringur er í herbúðum ríkisstjórnarflokkanna vegna þingsályktunartillögu sjálfstæðismanna um að Alþingi dragi til baka landsdómsákæruna á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sem samþykkt var haustið 2010.
Gert er ráð fyrir að tillagan verði tekin til umræðu á morgun, föstudag, en samþykkt var fyrir jól að taka hana á dagskrá þingsins og að hún væri þar með þingtæk.
Eins er ljóst að grein Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag um landsdómsmálið þar sem hann lýsti þeirri skoðun sinni að rangt hefði verið að ákæra Geir hefur aukið enn á þann taugatitring sem fyrir var og auk þess hleypt illu blóði í marga. Af samtölum við þingmenn í gær má ráða að greinin hafi komið eins og sprengja inn í umræðuna um þingsályktunartillöguna og hafi málið þótt nógu slæmt fyrir. Augljóst er að ófáir stjórnarþingmenn, ekki síst í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hugsa Ögmundi þegjandi þörfina.
Vilja tillöguna af dagskrá
Fyrir liggur að ýmsir í röðum stjórnarþingmanna eru mjög óánægðir með að þingsályktunartillaga sjálfstæðismanna hafi verið tekin á dagskrá þingsins. Fram hefur komið að hópur þingmanna vinni að því að leggja fram svokallaða rökstudda dagskrártillögu um að þingsályktunartillagan verði tekin af dagskrá. Það verður þó ekki fyrr en að lokinni fyrstu umræðu um þingsályktunartillöguna verði dagskrártillagan lögð fram þar sem þingsályktunartillagan er komin á dagskrá.
Hvað grein Ögmundar áhærir hafa stjórnarþingmenn sem Morgunblaðið hefur rætt við valið að nota missterk orð til þess að lýsa afstöðu sinni til hennar. Þannig kallaði Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, eftir því í gær að Ögmundur segði af sér vegna málsins í samtali við mbl.is á meðan Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði greinarskrifin valda sér verulegum vonbrigðum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, kaus á hinn bóginn að orða það svo að gerðir Ögmundar og skrif hans væru á hans eigin ábyrgð.
Mjótt á mununum
Þá hafa ýmis aðildarfélög stjórnarflokkanna sent frá sér sterkorðaðar ályktanir um málið í vikunni þar sem þingmenn þeirra eru hvattir til þess að styðja ekki þingsályktunartillögu sjálfstæðismanna og í einhverjum tilfellum hafa fulltrúar slíkra félaga gengið svo langt að hóta þingmönnum slæmu gengi í næstu prófkjörum að öðrum kosti.
Óvíst er hvaða örlög þingsályktunartillaga sjálfstæðismanna kann að hljóta en í röðum þingmanna heyrist sú skoðun að hver sem niðurstaðan verði þá verði að öllum líkindum mjög mjótt á mununum. Ýmsir þingmenn sem kusu með ákærunum á hendur Geir og þremur öðrum fyrrverandi ráðherrum haustið 2010 hafa lýst því yfir að þeir ætli að styðja þingsályktunartillögu sjálfstæðismanna um að ákæra á hendur Geir verði dregin til baka. Eins er búist við að einhverjir þeirra þingmanna sem lögðust gegn ákærunum á sínum tíma muni leggjast gegn niðurfellingu ákærunnar.
Það sjónarmið mátti einnig heyra hjá þingmönnum að óháð því hvaða niðurstöðu þingsályktunartillagan fengi væri málið allt til þess fallið að veikja enn ríkisstjórnarsamstarfið og auka á samskiptaerfiðleika innan þingflokka stjórnarflokkanna sem og þeirra á milli. Nokkuð sem nóg hafi verið af fyrir. „Einn naglinn enn í kistu stjórnarinnar,“ sagði einn þingmaður.






































