Samningum ekki sagt upp
Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, rita undir samkomulagið Morgunblaðið/Eggert
Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands undirrituðu nú eftir hádegið samkomulag um að kjarasamningarnir gildi áfram og að uppsagnarákvæði samninganna verði ekki nýtt.
Í sameiginlegri yfirlýsingu ASÍ og SA segir að þrátt fyrir að forsenda kjarasamninga 5. maí 2011 um efndir á fyrirheitum í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hafi ekki gengið eftir muni hvorugur samningsaðila segja upp kjarasamningunum.
„Forsendunefnd samninganefndar aðildarsamtaka ASÍ og SA hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær fyrstu þrjár forsendur sem settar voru fyrir samningum þeirra hafi gengið eftir en að sú forsenda sem fjallar um efndir ríkisstjórnarinnar á þeim fyrirheitum sem hún gaf í sérstakri yfirlýsingu í tengslum við þá hafi ekki gengið eftir,“ segir í yfirlýsingu samtakanna sem gefin var út samhliða undirritun samkomulagsins.
Forystumenn ASÍ og SA undirrituðu samkomulagið í húsakynnum ASÍ um klukkan hálf tvö í dag.. mbl.is/Eggert
„Ekki traustsins verð“
Í annarri yfirlýsingu sem SA hafa sent frá sér vegna uppsagnarákvæða samninganna segir að ákveðið hafi verið að staðfesta þessa ákvörðun um að samningarnir gildi áfram þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011.
„SA telja að uppsögn samninga leiði ekki til betri stöðu fyrir atvinnulífið eða samfélagið í heild. Uppsögn kjarasamninga muni ekki bæta skilyrði fyrir fjárfestingar í atvinnulífinu, fjölgun starfa og minna atvinnuleysi. Fjölmörg fyrirheit ríkisstjórnarinnar hafa ekki verið efnd en veigamest er að væntingar um auknar fjárfestingar og hagvöxt eru ekki að ganga eftir. Nýleg ákvörðun um skattlagningu lífeyrissjóða bætist síðan við sem gengur þvert á markmið yfirlýsingarinnar um lífeyrismál og eykur ójafnræði milli almennra lífeyrissjóða og þeirra sem eru á vegum hins opinbera.
SA vekja athygli á því að forsendur kjarasamninganna í janúar 2013 eru þær að kaupmáttur hafi vaxið áfram, verðbólga verði 2,5% og að gengi krónunnar hafi styrkst þannig að gengisvísitalan fari í 190, en hún er nú um 220. Þetta mun vart ganga eftir nema með umtalsverðu innstreymi erlends fjármagns, einkum vegna orkuframkvæmda og erlendra fjárfestinga í orkufrekum iðnaði,“ segir ennfremur í yfirlýsingu SA.
Þá segja samtökin að þau hafi lagt sig fram um að vinna með ríkisstjórninni allt frá gerð Stöðugleikasáttmálans 2009. Ríkisstjórnin hafi hins vegar skapað mikið vantraust í sinn garð hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem mynda Samtök atvinnulífsins „og sýnt að hún er ekki traustsins verð.“





































