Ögmundur varði ákvörðun sína
Björn Valur Gíslason og Ögmundur Jónasson fluttu framsögu á fundi VG í Reykjavík í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra varði ákvörðun sína í landsdómsmálinu á Alþingi á fundi VG í Reykjavík í kvöld. Um 60 manns mættu á fundinn, samkvæmt RÚV, m.a. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, og Björn Valur Gíslason þingflokksformaður, sem var með framsögu ásamt Ögmundi.
Fram kom hjá Ögmundi að hann teldi að það ætti að hætta við ákæruna á hendur Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra. Kæran væri yfirborðskennd tilraun til uppgjörs við fortíðina. Það sem þyrfti að gera væri að læra af mistökunum í hruninu og aðdraganda þess. Taka á rótum vandans, spillingu, kvótabraski, aðferðinni við einkavæðingu bankanna og fleiri málum af því tagi.
Þorvaldur Þorvaldsson minnti á að ef dæma ætti Geir sekan fyrir þá pólitísku stefnu að einkavæða banka hlyti Steingrímur J. Sigfússon einnig að verða dreginn fyrir rétt af því að hann hefði einkavætt þá á ný eftir hrun!
Björn Valur skýrði afstöðu sína til kærunnar gegn Geir, en Björn var meðal þeirra þingmanna sem vildu vísa tillögu Bjarna Benediktssonar frá. ,,Ég hef ekki séð nein haldgóð rök fyrir því að falla frá þessu máli," sagði Björn Valur en sagði að enginn í þingflokknum hefði verið sáttur við að þurfa að draga Geir fyrir dóm.
Margir kvöddu sér hljóðs með spurningum til framsögumanna eða til að viðra skoðanir sínar. Ámundi Loftsson rifjaði upp að hann hefði verið viðstaddur þegar greidd voru atkvæði á Alþingi um það hvort kæra bæri ráðherra vegna hrunsins. Það hefði verið ömurlegt að upplifa, hann hefði aldrei séð ljótari áru en þá hvíldi yfir þingi. Einnig velti hann fyrir sér hvort VG hefði yfirleitt tekið með einhverjum hætti á afleiðingum hrunsins í stjórnartíð flokksins, nú þegar þúsundir manna vær að flýja landið og enn fleiri að missa aleiguna.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Innlent Nýtt framboð kynnt í febrúar
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Björn Valur: Ígildi þess að afneita hruninu
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Mikið áfall ef VG snýr baki við Jóni
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Réttur foreldra í fæðingarorlofi grundvallarmál
- Miðvikudagur, 8. júní 2011, Innlent Heitar umræður um aðgerðir í Líbíu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































