Fréttaskýring: Vilja lægja öldurnar í stjórnarliði
Kristján Jónsson kjon@mbl.is
Ljóst er að margir samfylkingarmenn álíta nú að best sé að reyna að lægja öldurnar sem risið hafa vegna mismunandi afstöðu til landsdómsmálsins gegn Geir H. Haarde.
Fjórir þingmenn flokksins, þ.ám. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingforseti, voru andvígir frávísun sem stefnt var gegn þingsályktunartillögu um að mál Geirs yrði fellt niður. Ósk Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra, sem vildu ekki að tillaga Bjarna Benediktssonar fengi þinglega meðferð, var hunsuð.
Staðan er óljósari hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði en landsdómsdeilan var ekki rædd á fundi þingflokksins í Borgarnesi í gær. Því fer samt fjarri að andróðurinn gegn Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra vegna stuðnings hans við að fella ákæruna niður sé úr sögunni. Reykjavíkurfélag VG hefur boðað til rabbfundar í kvöld um „landsdómsmálið, uppgjör þjóðarinnar við hrunið og framtíð flokksins“. Þar munu þeir mæta Ögmundur og Björn Valur Gíslason, formaður þingflokksins. Nokkrir þingmenn VG hafa sagt að Ögmundur ætti að víkja af ráðherrastóli og Þráinn Bertelsson sagði í gær að hann væri enn þeirrar skoðunar.
Samfylkingin í Reykjavík heldur svo fund annað kvöld um „Landsdóm, stöðu Samfylkingarinnar, pólitíska ábyrgð“ og fleira. Margir liðsmenn flokksins hafa ráðist harkalega á Ástu Ragnheiði fyrir að stöðva ekki tillögu sjálfstæðismanna sem þeir segja ekki þingtæka. Ungir jafnaðarmenn sendu frá sér yfirlýsingu, þeir fordæmdu afstöðu Ástu Ragnheiðar og kröfðust þess að nýr þingforseti yrði kjörinn.
Mörður vill nýjan þingforseta
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, beitti sér ákaft fyrir frávísun á föstudag og hann staðfesti í gær að hans nafn væri á undirskriftalista Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar, um að forseti Alþingis viki úr embætti. Birgitta sagðist í gær vera búin að fá alls átta undirskriftir. Spurður um stuðning við ráðherrana Össur og Ögmund svaraði Mörður í véfréttarstíl að hann styddi ríkisstjórnina.
„Ég tel yfirlýsingu Ungra jafnaðarmanna byggða á misskilningi þeirra,“ segir Ásta Ragnheiður. „Ég er forseti alls þingsins og verð auðvitað að fara að lögum og reglum. Ég er með lögfræðiálit um að málið [tillaga Bjarna] sé þinglegt. Það var gert samkomulag milli forseta og þingflokka í desember um að málið færi á dagskrá þegar þing kæmi aftur saman og það var enginn sem mótmælti því.“
Ekkert var minnst á kröfur um afsögn Ástu Ragnheiðar á löngum þingflokksfundi Samfylkingarinnar í gær. Magnús Orri Schram, starfandi formaður þingflokksins, segir að menn hafi frá upphafi haft ólíkar skoðanir á landsdómsmálinu. „Það var kristaltært af okkar hálfu að það yrði ekki beitt neinum flokksaga og það er óbreytt. Þannig var það í kosningunni á föstudag og þannig verður það væntanlega þegar tillagan kemur út úr nefndinni.“
Menn vildu nú einbeita sér að brýnum verkefnum á borði ríkisstjórnarinnar. „Við ræddum t.d. stöðuna í ESB-viðræðunum við utanríkisráðherra og áttum góða og málefnalega umræðu um hana. Það er mikil ánægja með það hvernig Össur heldur utan um það verkefni.“
UMMÆLI ÞRÁINS Á ÞINGI
Íhugaði stöðu sína
Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, velti í þingræðu á föstudag fyrir sér stöðu sinni ef ákæran gegn Geir H. Haarde yrði dregin til baka. „Er mér þá sætt á þingi þar sem meirihluti þingmanna er þeirrar skoðunar að löggjafarvaldið megi skipta sér af dómsvaldinu?“ Sagðist Þráinn myndu leita álits lögmanna.
Þráinn segir lögmenn ekki sammála um mál Geirs. „En mér heyrist á þeim að staða mín sé ekki eins mikið vafamál af því að ég greiddi atkvæði gegn því að tillaga Bjarna yrði tekin fyrir á Alþingi. Ég hafi þanng fríað mig undan hugsanlegri ákæru vegna aðgerðaleysis.“





































