Endanleg útfærsla liggur ekki fyrir
Formaður foreldrafélags Breiðagerðisskóla segir slæmt ef foreldrar séu ósáttir við þá ákvörðun - og skort á kynningu á því - að skólabörn eigi að nýta skólastofur í Hvassaleitisskóla á meðan framkvæmdir standa yfir í austurálmu Breiðagerðisskóla. Skoðanir séu skiptar en ljóst sé að endanleg útfærsla liggi ekki fyrir.
„Okkur fannst þessi lausn ekki slæm. Það sem er hins vegar leiðinlegt er ef að foreldrar í Hvassaleitisskóla eru óánægðir og að þeir hafi ekki verið upplýstir. Ég held reyndar að allt skipulag í kringum þetta sé afskaplega stutt á veg komið,“ segir Elsa Þórey Eysteinsdóttir, formaður foreldrafélags Breiðagerðisskóla, í samtali við mbl.is.
Hún tekur hins vegar fram að menn hefðu átt að fá skólastjórnendur til að útskýra málið betur. „Auðvitað er það slæmt að það hafi ekki verið gert; afskaplega slæmt,“ segir Elsa og bætir við að fjölmörgum spurningum sé enn ósvarað.
Elsa segist ekki hafa sýn yfir skoðanir allra foreldra barna í Breiðagerðisskóla en ljóst að þær séu misjafnar. Aðspurð telur hún að foreldrar barna í Breiðagerðisskóla séu aðallega óöruggir varðandi það hvernig lokaútfærslan verði. Þá lítist mörgum t.d. illa á að börnin þurfi að ganga yfir Grensásveg til að komast í skólann. Elsa bendir á að menn hafi m.a. rætt um að aka börnum í skólann. Þetta sé hins vegar dæmi um þá þætti sem eigi eftir að útfæra og ræða frekar.
Framkvæmdirnar fagnaðarefni
Elsa fagnar því sérstaklega að það eigi að fara taka í gegn austurálmu Breiðagerðisskóla, sem hafi nánast verið ónýt í mörg ár. Viðhaldi hafi ekki verið sinnt en nú eigi loksins að taka álmuna í gegn. Hún segir að ákvörðunin hafi verið tekin seint á síðasta ári og munu framkvæmdirnar hefjast strax og þessum skólavetri lýkur. Þá munu þær standa yfir allan næsta vetur. Þá lokast 10 skólastofur í Breiðagerðisskóla, en þetta snertir börn í 5., 6. og 7. bekk skólans. „Þá þarf að gera eitthvað við börnin.“
Hún segir að menn hafi staðið frammi fyrir tveimur kostum. „Það er að setja upp lausar skólastofur á lóðinni eða nýta laust húsnæði í Hvassleitisskóla, þar sem mér skilst að séu fjölda margar kennslustofur lausar. Þó að ég viti það nú ekki nákvæmlega.“
Hún segist ekki hafa svör á reiðum höndum og þá segir hún að á þessu stigi hafi hvorki skólastjórnendur né borgaryfirvöld skýr svör varðandi endanlega útfærslu. „Ég held að skólastjórarnir í þessum skólum séu rétt að byrja að hittast í þessum mánuði og reyna að átta sig á þessu.“
Vonandi næst jákvæð lending
„Við í Breiðagerðisskóla fengum ekkert val um það hvort við vildum lausar skólastofur eða þetta [að nýta stofur í Hvassaleitisskóla]. Það er ákvörðun sem borgin tók. Og sumir eru kannski svolítið ósáttir við það að við höfum ekki fengið hafa neitt um það að segja.“
Elsa tekur fram að sér finnist það ekki vera vitlaus hugmynd að nýta laust húsnæði í skóla í nágrenninu. „Ég vona að það verði einhver jákvæð lending á þessu öllu saman.“
Þá segir Elsa að skólastjóri Breiðagerðisskóla stefni að því að halda fund þar sem málið verður kynnt betur. Ekki liggur fyrir hvenær sá fundur verður haldinn.





































