Snjóflóð féllu á Siglufjarðarveg
Siglufjörður. mats.is
Siglufjarðarvegi hefur verið lokað vegna snjóflóða en búist er við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag.
Líkt og fram hefur komið hefur verið lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og er vegurinn því lokaður. Hætta er talin á að snjóflóð falli víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá.
Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar er stórhríð og NA 18-23 m/s á norðanverðum Vestfjörðum í dag. Færist smámsaman suður á bóginn og nær til Breiðafjarðar og Stranda um hádegi. Þétt snjókoma víða norðanlands, en þar tekur ekki að hvessa að ráði fyrr en um og upp upp úr miðjum degi. Fyrst vestantil á Norðurlandi.
Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er snjóþekja og hálka og sumstaðar éljagangur.
Snjóþekja og snjókoma eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og hálkublettir á Vesturlandsvegi. Þæfingsfærð er á Suðurstrandarvegi en þungfært á Krýsuvíkurvegi.
Hálka og snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð er á Útnesvegi en ófært í Álftafirði.
Á Vestfjörðum er þungfært og þæfingsfærð víða. Ófært er á Gemlufallsheiði, Klettshálsi, Kleifaheiði, Hálfdán og Mikladal. Ófært og stórhríð er á Súðavíkurhlíð, í Önundar- og Súgandarfirði og Ísafjarðardjúpi. Þæfingsfærð er á Eyrarhlíð. Þungfært og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja og éljagangur er á Þröskuldum.
Á Norðurlandi vestra er hálka, snjóþekja og snjókoma. Hálka er á Öxnadalsheiði.
Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja, skafrenningur og víðast hvar snjókoma. Þæfingsfærð og snjókoma er á Hólasandi.
Flughálka er á milli Kelduhverfis og Raufarhafnar að Vopnafirði.
Á Austurlandi er snjóþekja, hálka og snjókoma.
Á Suðausturlandi er snjóþekja.
Innlent »
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Stórhríð og óvissustig
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Óveður og snjófljóðahætta
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Stórhríð vestanlands
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Versnandi veður og færð
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Snjóflóð lokar Ólafsfjarðarmúla
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































